Litli Bergþór - 01.07.2011, Qupperneq 8
Herdís Anna Magnúsdóttir.
frá Hvítárbakka og móðir hennar, Ólöf Karlsdóttir, er
frá Gýgjarhólskoti.
• Björgunarsveit Biskupstungna hefur selt snjósleða,
sem voru í eigu hennar og keypt sérútbúin fjórhól í
þeirra stað þar sem snjósleðarnir hafa nýst takmarkað
í útköll undangengin ár.
• Skólaþing var haldið í Aratungu þann 30. mars til
að fá fram hugmyndir íbúa og nemenda um hvernig
hægt er að efla skólastarf í sveitarfélaginu. Þátttaka
var góð en um 110 fullorðnir og um 140 nemendur
skólans tjáðu sig um málið auk þess sem leikskóla-
börn fengu að segja sínar skoðanir á mál-efninu.
• Arsreikningur Bláskógabyggðar var lagður fram og
samþykktur á sveitarstjórnarfundi 12. maí.
• Halldór Karl Hermannsson sviðsstjóri þjónustu- og
framkvæmdasviðs Bláskógabyggðar hefur sagt starfi
sínu lausu. og hefur starfið verið auglýst laust til
umsóknar.
• Gunnar Birgisson á Kjóastöðum bauð Loga-fólki
til Kjóastaðaleika í samstarfi við Æskulýðsnefnd
Loga laugardaginn 14. maí. Þar voru leystar ýmsar
þrautir og keppt, m.a. í boðhlaupi.
• Elín Gunnlaugsdóttir, Skúlasonar úr Laug-arási
verður staðartónskáld Skálholtsstaðar sumarið 2011.
• Loftur Jónasson og Vilborg Guðmundsdóttir í
Myrkholti vinna að því um þessar mundir að opna
veitingastað í Árbúðum á Kili.
• Jón Hjalti Eiríksson í Gýgjarhólskoti hlaut hæstu
einkunn á stúdentsprófi við Menntaskólann á
Laugarvatni í vor. Hann útskrifaðist frá náttúrufræði-
braut með lokaeinkunnina 9,78.
• Það var einnig Tungnamaður sem fékk næsthæstu
einkunn við Menntaskólann á Laugarvatni, einnig af
náttúrufræðibraut, en það var Herdís Anna Magnús-
dóttir í Hveratúni í Laugarási með einkunnina 9,16.
• Boðnar verða siglingar um Hvítárvatn við rætur
Langjökuls í sumar. Það er fyrirtækið Hvítárvatn ehf.
í samstarfi við Icelandix excursion og Islenska
fjallaleiðsögumenn sem sér um þessar ferðir.
• Vorhátíð víkinganna í víkingahópnum Rimmugýgi
hélt vorhátíð sína í Reykholti í samstarfi við Kaffi
Klett helgina 3.-5. júní.
• Hreinsunarvika var haldin vikuna 30. maí til 5. júní
og voru íbúar hvattir til að „gera hreint fyrir sínum
dyrum” eins og það var orðað í auglýsingu. Var
móttökustöðin opin þá helgi og gat fólk fargað rusli
þar án endurgjalds.
• Ný mörk eru komin á íþróttavöllinn í Reykholti,
veg og vanda af því áttu þeir Gísli Þór Brynjarsson,
Smári Þorsteinsson og Oddur Bjarni Bjarnason.
• Sigurlína Kristinsdóttir opnaði vinnustofu í
hesthúsi í Reykholti þar sem hún selur list sína, þar
er opið alla daga nema sunnudaga.
• Skrifað hefur verið leikrit um Sigríði Tómasdóttur
í Brattholti, höfundur leikritsins er Kristín Hafsteins-
dóttir, bókmenntafræðingur.
• 17. júní fór fram með hefðbundnu sniði. Hátíðar-
messa var í Torfastaðakirkju, skrúðganga frá
Bjarnabúð upp í íþróttamiðstöð þar sem skemmti-
atriði fóru fram og á eftir var hægt að kaupa sér
kaffiveitingar í Aratungu.
• Fjallkona var Guðrún Loftsdóttir, Vesturbyggð 1
og um ræðu nýstúdents sá Herdís Anna Magnús-
dóttir, Hveratúni.
• Við hátíðarhöldin 17. júní afhenti Kvenfélag
Biskupstungna sveitarfélaginu líkamsræktartæki að
upphæð rúma milljón króna að gjöf. Tækin eru
staðsett í íþróttamiðstöðinni í Reykholti og voru þau
keypt fyrir ágóðann af dagatalinu sem Kvenfélagið
gaf út fyrir árið 2010.
• Ungmennafélagið gaf sveitarfélaginu róðrartæki að
upphæð rúm 200 þúsund að gjöf við sama tækifæri
og er það einnig staðsett í Iþrótta-
miðstöðinni í Reykholti.
• Reynir Arnar Ingólfsson frá
Engi í Laugarási keppti fyrir
Islands hönd á „Special
Olympics” dagana 25. júní til
4. júlí og náði silfri í B-riðli
með liði sínu í 7 manna
fótbolta. Glæsilegur árangur
það.
• Kvenfélag Biskupstungna
gaf út dagatal fyrir árið 2012
þar sem félagskonur sitja
léttklæddar fyrir á myndum.
S.T.
Litli-Bergþór 8