Litli Bergþór - 01.07.2011, Page 14
Aðstaða okkar Tungnamanna á
þessu sviði hefur verið og er enn
mjög góð. Héraðslæknirinn hefur
verið búsettur í sveitinni síðan
laust fyrir síðustu aldamót, fyrst í
Skálholti fram til 1920, en síðan í
Laugarási. Þá keyptu hinir sex
hreppar læknishér-aðsins, sem hét
þá Grímsneshérað, jörðina
Laugarás, notalega landgóða jörð,
með geysimiklum jarðhita og
liggur nákvæmlega í miðju
héraðinu. Það voru heillakaup, sem
þá voru gerð. I Laugarási er eitt
fegursta útsýni, sem gerist í sveit á
Islandi. A þessu 50 ára tímabili er
búið að byggja þrjú íbúðarhús fyrir
lækninn, fyrst timburhjall, sem
hverahitinn átti að gera að góðum
bústað, en tókst ekki. Næsta hús
þótti ágætt til að byrja með, en
svaraði ekki lengur tímans kröfum.
Það, sem nú er nýlega byggt er
vitanlega bezt og á að vera
framtíðarlæknisbústaður. En
Laugaráshérað er víðlent og
mannmargt, fjölmennir skólar í
hverri sveit, fimm á Laugarvatni og
þegar hún kemur til okkar og þurrkar vel töðuna.
Ég get ekki sagt frá því hvað nettótekjur Biskups-
tungnamanna eru miklar, en ég fer nærri um það
hvað við verðum að láta af hendi rakna í sveitar-
sjóðinn. Sá bóndinn, sem þyngstu byrðina ber í þessu
falli greiðir hreppnum, 64 þúsund krónur og um
annan veit ég, sem greiðir 45 þúsund krónur, en báðir
þessir bændur hafa töluverðar aukatekjur. Tekju- og
eignaútsvör í hreppnum á þessu ári eru rúmar þrjár
millj. kr., en með aðstöðugjaldi og fasteignaskatti
verða þessar tekjur sveitarinnar hátt á fimmtu millj.
kr. Lagt var á 80% af útsvarsstiganum.
Mér finnst félagslíf í sveitinni heldur gott, en af því
að ég hefi tekið þátt í því er minn dómur kannski
ekki mikils virði. Félögin eru hin sömu og víðast
hvar annars staðar. Búnaðarfélagið er elzt, 85 ára,
ungmennafélagið 63 ára og kvenfélagið eitthvað á
fimmtugsaldri. Nautgriparæktarfélagið er 62 ára,
sauðfjárræktar- og hrossaræktarfélögin eru yngri og
Hestamannafélagið Logi er yngzt. Öll halda þessi
félög árshátíðir. Þar er gleði og gaman, mikið sungið
og dansinn dunar.
Tíminn er þrotinn og þið, sem á mig hlustið búin
að fá nóg af svo góðu. Samt hef ég ekki getað komið
ýmsum áhugamálum mínum að, en segi amen eftir
efninu og býð ykkur góðar stundir.
Litli-Bergþór 14 ______________________________________________________________________________________
sumarbústaðir svo margir, að varla verður tölu á
komið, sem auka mjög starf læknisins að sumrinu til.
Einn læknir annar ekki þessu mikla starfi, svo að
okkar ágæti læknir sagði héraðinu lausu í fyrra vetur.
Forráðamenn héraðsins brugðu hart við, héldu til
hærri staða og fengu vilyrði fyrir lítilli læknamiðstöð,
þ.e. tveir læknar og hjúkrunarkona, sem þegar er
komin til starfa, og nýr læknisbústaður er að komast
undir þak. Það þarf varla að taka það fram, að
læknirinn okkar fór ekki frá okkur, þegar þetta mál
var leyst á svo heillaríkan hátt. Við uppsveita
Arnesingar erum hamingjusamir yfir svona góðri
heilbrigðisþjónustu og óskum að allir
landsbyggðarmenn megi verða hins sama aðnjótandi.
Biskupstungur og Hrunamannahreppur liggja hlið
við hlið með Hvítá á milli sín. Þessar sveitir teygja
sig lengst að hálendinu. Fróðir menn telja að Hólar í
Biskupstungum, sem var í byggð um allar aldir
þangað til fyrir fáum árum, sé sú jörð á Islandi, sem
sé lengst frá sjó, og þó styzt í Hvalfjarðarbotn. Oft er
frosthart í sveitinni. Kalda loftið streymir ofan af
hálendinu og leggur Langjökull til drjúgan skerf af
því. Þegar logn er á vetrum liggur þetta loft fast yfir
sveitinni þó að hlýindi séu að koma upp á strönd og
víkur ekki fyrr en snarpur sunnan vindur hrekur það
á brott. En við fáum líka stundum góðar hitastundir á
sumrin og hafgolan er tiltölulega hlý og rakalítil
Heyskapur í Höföa í ágúst 1960, f.v. Guðrún Víglundsdóttir, Þórhildur
Sigurðardóttir og Stefán Guðmundsson.