Litli Bergþór - 01.07.2011, Síða 20
Ferdaþjónustan í sverfcasaslunni
í úthira
Ferðaþjónustan í Úthlíð var stofnuð í maí árið 1991
og fagnar því 20 ára afmæli um þessar mundir. Það
má segja að tvítug ferðaþjónsta sé búin að hlaupa af
sér hornin og nú taki alvara fullorðinsáranna við.
Upphaf ferðaþjónustunnar má rekja til þess að Björn
bóndi í Úthlíð fór að leigja út lóðir fyrir orlofshús í
kjarri vaxinni hlíðinni fyrir austan bæinn. Þetta leiddi
til þess að hann ákvað, ásamt Agústu eiginkonu
sinni, að söðla um, hætta í hefðbundnum búskap og
helga sig þjónustu við borgarbúana.
I dag er í Úthlíð kraftmikil ferðaþjónusta þar sem
er í boði afþreying svo sem golfvöllur, hestaleiga og
sundlaug. Einnig er þar veitingastaðurinn Réttin,
tjaldstæði, ferðamannaverslun, bensínstöð og
gassala. Síðar byggði Björn Úthlíðarkirkju sem
einnig hefur sitt hlutverk í ferðaþjónustunni.
A svæðinu í kringum Úthlíð er mikil og vaxandi
sumarhúsabyggð bæði á vegum einstaklinga og
fyrirtækja. Þeir sem byggja sér sumarhús velja sér í
vaxandi mæli staði þar sem eru fjölbreyttir
afþreyingarmöguleikar, lifandi samfélag og gott
félagslíf.
Ferðaþjónustan í Úthlíð leigir út sumarhús af
ýmsum stærðum og gerðum. Er þá vinsælt að fara í
sund, skella sér á hestbak eða taka 9 holur á
golfvellinum. En það er sama hver afþreyingin er,
heiti potturinn og grillið er ómissandi hluti af því að
fara í bústað.
Golfvöllur hefur verið starfræktur í Úthlíð síðan
1992. Völlurinn er 9 holu, par 35 og hannaður af
Gísla Sigurðssyni, þekktum kylfingi, blaðamanni og
listmálara frá Úthlíð. Félagar í Golfklúbbi Úthlíðar
eru nú ríflega tvö hundruð og fjölgar ár frá ári.
Sundlaugin Hlíðalaug er lítil og heit náttúruleg
laug. Sumir segja hana vera stærsta heitapott
Einn af sumarbústöðunum.
Golfvöllurinn í Úthlíð.
landsins. Þarna er tilvalið að fara með börnin og
leika við þau í heitri lauginni. Við laugina er rekin
lítil ferða-mannaverslun og geta íbúar í nágrenni við
Úthlíð gengið að því nokkuð vísu að það er hægt að
finna flest sem gleymdist heima í búðinni, allt frá
gasi og öðrum grillvörum upp í veislumatinn á grillið
og meðlætið með því. Að sjálfsögðu er ísinn, gosið
og sælgætið á sínum stað í búðinni.
Það er sérlega gaman að koma saman í Réttinni og
taka lagið eins og Björn bóndi vill jafnan gera. Réttin
er frábær veislusalur sem tekur 120 manns í sæti. í
salnum er allur veislubúnaður sem þarf til að
fullkomna hátíðina. Réttin er opin alla virka daga og
þar er selt í golfið, einnig er hægt að fylgjast með
stórviðburðum sem sendir eru út í sjónvarpi á
skjánum allt frá Enska boltanum til Evróvisíón.
Kirkjan var vígð árið 2006 en hún var reist til
minningar um Agústu Olafsdóttur, eiginkonu Björns.
Kirkjan tekur 120 gesti í sæti og er opin öllum til
kirkjulegra athafna. Oft eru haldnar messur í
kirkjunni og eru þær auglýstar á vef ferðaþjónust-
unnar, en einnig er hægt að fá kirkjuna undir
brúðkaup, skírnir eða fermingar.
Hægt er að leigja hesta í Úthlíð og fara í stutta
reiðtúra í næsta nágrenni við bæinn. Er þá oftast riðið
inn Skarðaveg í áttina að Kolgrímshóli. Einnig eru
nokkrar skipulagðar hestaferðir farnar frá Úthlíð og
inn Brúarárskörð og jafnvel allt inní Brekkur, sunnan
við Hagavatn, með gistingu og fjöri. Að sjálfsögðu er
lagið tekið í slíkum ferðum.
Ágæt tjaldstæði eru á holtinu fyrir neðan hlíðina.
Þar eru skemmtileg lítil gi illhús sem hægt er að grilla
í þótt hann rigni. Vatnssalerni og rafmagn fyrir stærri
bíla og hjólhýsi er á svæðinu. Möguleiki er einnig að
tjalda á Höfðaflötum við rætur Högnhöfða.
Allar nánari upplýsingar eru á www.uthlid.is
Hjördís Björnsdóttir.
Litli-Bergþór 20