Litli Bergþór - 01.07.2011, Qupperneq 24
Hópurinn ásamt fararstjórum og kennurum.
og áburðargjöf. Einnig um formklippingu trjánna, því
ef vel er hugað að þeim þáttum er hægt að auka
fjölda „nýtanlegra“ jólatrjáa úr um 50% upp í 95 %.
Akrarnir voru ýmist með jafngömlum trjám eða
blandaðir. Við sáum hvernig menn hirtu um trén, þau
fengu fótsnyrtingu, toppar voru lagaðir,
greinakransarnir snyrtir o.s.frv. Mörg var búmanns
raunin í jólatrjáaræktinni en á móti kom að til mikils
var að vinna, því afurðirnar, bæði tré og greinar, eru
afar verðmiklar því jólatré og skrautgreinar eru
mikilvæg og vaxandi tekjulind margra
skógareigenda.
Fimmta daginn tókum við fyrir sögunarmyllur.
Bent Jensen kenndi okkur. Við heimsóttum tvo aðila.
Annar rekur litla sögunarmyllu og sagar fyrir menn
sem koma með timbur til hans.
Síðan fórum við inn á mitt Jótland þar sem tveir
Jótar eru með mjög góða aðstöðu. í stórri skemmu
saga þeir ýmislegt en aðalframleiðslan hjá þeim eru
skýli og kofar, bálhús o.fl. Þeir ganga frá þessu í
pakkningar, líkja má þeim við IKEA, þar sem allt
fylgir. Þeir steypa m.a.s. sjálfir litlar hellur sem húsin
standa á og mold og grasfræið á þakið fylgir með.
Við skoðuðum nokkrar útgáfur af skýlum. Annar
maðurinn býr þarna og hann og hans fjölskylda svaf í
einu skýlanna í mánuð s.l. sumar. Þessi skýli eru
vinsæl og þeir selja mikið af þeim. Verðið var frá
200-800 þús. ísl. krónur en hærra ef um lúxus-
bjálkaskýli var að ræða. Það var mjög gaman að
skoða allt þarna hjá þeim, allt var snyrtilegt og flott.
Síðasta kvöldmáltíðin okkar var heilmikil veisla.
Settumst við svo inn í skólastofu og fórum yfir
námskeiðið. Þetta átti nú að vera stutt yfirferð en það
gekk ekki, því við þurftum svo mikið að tjá okkur og
spjalla fram og aftur um námið. í raun má segja að
þarna fengjum við þriggja til fimm ára háskólanám á
fimm dögum. Nokkuð mikil hraðferð það. Loks
gátum við aðeins sest niður á setustofunni og snúið
okkur að lokaverkefninu; að klára bjórinn okkar og
taka létt spjall síðasta kvöldið.
Arla morguns sjötta dags var lagt af stað heim.
Ekki var þó allt búið því Bent, einn kennarinn okkar,
kom við á sögunarmyllunni sinni á Sjálandi og sýndi
okkur hana. Þar var mjög gaman að koma. Hann er í
gömlum húsakynnum, með alls kyns þykktarhefla og
vinnur þarna timbur fyrir fólk. I góðærinu var talsvert
að gera en núna er miklu minna um að vera.
Þá var komið að kveðjustund, því hluti hópsins
ætlaði inn í Kaupmannahöfn, ýmist í heimsóknir eða
til að gerast túristar um helgina. Flestir voru þó að
fara beint í flug heim. Undirritaðar fóru inn í
Kaupmannahöfn og tóku þar á móti eiginmönnum
sínum og áttu þau þar góða helgi saman. Allir voru
sáttir og sælir með góða daga á Jótlandi, mikill
fróðleikur var innbirtur á stuttum tíma, en ekki síst
fékk maður þarna innblástur og vítamínsprautu til
áframhaldandi vinnu við uppáhaldið okkar allra, trjá-
og skógrækt.
Sigríður J. Sigurfinnsdóttir, Hrosshaga
Hildur María Hilmarsdóttir, Spóastöðum
Li+li-Bergþór 24