Litli Bergþór - 01.07.2011, Blaðsíða 33
Efalaust hefur verið orðið áliðið dags þegar við
fórum frá Ofeigsstöðum og ekki minnist ég þess að
við höfum stoppað oft. En ég man það glöggt að
klukkan þrjú um nóttina komum við að
Hreðavatnsskála og vorum þá bæði orðnir þurfandi
fyrir kaffi og bensín og mátti með sanni segja að það
var góð aðkoma eins og endranær þó að um miðja
nótt væri. Við vorum varla stoppaðir þegar Fúsi vert
var kominn út að dæla bensíni og sagði okkur
umsvifalaust að drífa okkur inn í eldhús, þar væri
kaffi á könnunni. Þar var meira en kaffi því að þarna
var hlaðborð af bakkelsi og var því öllu gerð góð skil
og síðan hef ég alltaf haft það á tilfinningunni að
Vigfús og hans fólk hafi ekki sofið mikið meðan á
þessum fjárflutningum stóð.
Ari seinna var enn farið norður og náð í fleiri lömb
þó að þau væru ekki eins mörg og árið áður. Fór það
allt fram með líku sniði, Guðmundur á Efri-Brú hafði
skrifstofu á Akureyri og stjórnaði þaðan fjárkaupum
og sendi síðan bílana í allar áttir eftir þörfum.
Nafnarnir Vigfús á Hreðavatni Guðmundsson og
Vigfús Guðmundsson á Selfossi (Hallæris Fúsi)
fylgdust með hvernig ferðirnar gengu og sáu til þess
að ekki væri þurrð á bílum, jafnvel þó einhverjir
heltust úr lestinni sem alltaf gat komið fyrir á svona
löngu ferðalagi.
Ekki man ég hvenær við Páll lögðum upp í þessa
ferð en allavega náðum við háttum á Akureyri um
kvöldið og voru vegirnir þó æði mikið seinfarnari þá
en núna. Eftir góða næturhvíld vorum við sendir
austur í Bárðardal til að taka lömb á Lundabrekku og
Bjarnastöðum. Eftir að búið var að Iesta bílinn var
haldið aftur til Akureyrar og var þá komið hádegi er
við komum þar og við orðnir þurfandi fyrir
hressingu. Er við komum á hótelið sátu þar margir að
snæðingi og spurði gengilbeinan hvað helst mætti
bjóða mér, ég var nú óklár að nefna rétti er fram voru
bornir á hótelum en sagðist helst vilja fá mikið af
einhverju kjarngóðu því ég var oðinn svangur. Konan
bar þá að mér súpudisk og stóran rúgbrauðshleif sem
ég gerði góð skil en hinu tók ég eftir að þeir sem
næstir mér sátu voru heldur sposkir á svipinn en ekki
tók ég það nærri mér.
Þarna í Bárðadalnum urðu fyrstu kynni mín af
forustufé og voru þau með þeim hætti að eftir þau
áleit ég að best myndi vera að skjóta það allt á færi
því að í þessum hópi var ein mórauð forustugimbur.
Var hún svo snarvitlaus í óþægð að við vorum bæði
orðin uppgefin er við komum á Akureyri því að hún
lagði alla sína krafta í það að troðast ofan á hinum
lömbunum og brölta yfir grindur meðan hún hafði
krafta til og endaði það með því að ég varð að binda
hana í einu grindarhorninu og passa hana þar svo að
hin lömbin myndu ekki troða hana niður.
Ekki man ég glöggt hverjir áfangastaðir okkar voru
á heimleiðinni en trúlega hafa þeir verið á Blönduósi
og Hreðavatni en hitt er mér minnisstæðara að það
rættist þarna gamla máltækið að oft er fljótt skipast
veður í lofti. Þegar við fórum frá Akureyri var þar
sól og besta veður en þegar kom suður á heiðarnar
fór að dimma í lofti og er við komum suður í
Borgarfjörð var komin slagveðursrigning sem hélst
það sem eftir var ferðarinnar og var veðrið einna
verst í kringum Sandkluftavatnið. Er þetta eitthvert
versta veður sem ég hef komið út í. Bæði var þarna
mikið hvassviðri, vatnið stóð hátt af rigningunni og
gerði það sandinum auðvelt að skafa yfir bílana á
þessum mjóa vegi. Flestir bílarnir voru með segl yfir
hálfum pallinum til skjóls fyrir menn og skepnur en
þegar sandinn skóf svona upp á bílinn, veitti það
heldur litla vörn og var erfitt að sjá út úr augunum til
að fylgjast með lömbunum. í þessari ferð voru
lömbin flest hvít þegar lagt var upp að norðan en
þegar suður kom voru þau öll orðin grásvört vegna
þess að sandurinn hafði hlaðist svo mikið í ullina á
þeim.
Því miður man ég ekki nákvæmlega hvað þessi
ferð tók langan tíma en mig minnir þó að það hafi
verið um 36 tímar frá því að við fórum frá Akureyri
um morguninn. Eitt er víst að við Páll vorum báðir
orðnir þreyttir þegar við skiluðum lömbunum af
okkur og ég man að við ræddum um það okkar á
milli að það var sama hvert ég leit að ég sá ekkert
nema lömb, en hann sá bara veg. Það var samt fyrir
mestu að við skiluðum öllu fénu heilu á leiðarenda.
Halldór Þórðarson.
Illllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Þjónusta í yfir 30 ár
□ Þjónusta á búvélum og tækjum í landbúnaði
□ Smurþjónusta - Olíusíur í bíla og dráttarvélar
□ Háþrýstislöngur - Sérsmíði
□ Bifreiðaviðgerðir
□ Framrúðuskipti
□ Hjólbarðaþjónusta
□ Nýsmíði
33 Litli-Bergþór