Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2006, Blaðsíða 13
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2006
Ásmundur Uni Guðmundsson frá Krossi:
„Veit ég ykkur villist sýn66
Ásmundur Uni fjallar hér um gamalt manns-
hvarf, sögusagnir og embættisglöp en einnig
hina munnlegu geymd þar sem svo margt varð-
veitist kynslóð fram af kynslóð.
Það fer ekki hjá því að oft leiti á hugann löngu
gengnir atburðir sem síðar meir vilja komast á blað.
Þeir sem eldri em fræddu okkur yngri á atburðum og
sögum sem þeim eldri menn höfðu frætt þá um.
Þannig varðveitist fróðleikurinn kynslóð fram af
kynslóð. Þá var oft lítið skjalfest eða skráð annað en
það sem embættismennimir, prestar og sýslumenn,
skráðu í sínar bækur og var það oft æði stopult og
víða eru gloppur og göt í þeim gögnum.
Mér vitanlega hefur verið mjög hljótt um þann
harmleik sem varð á fjallskilasvæði Miðdælinga
haustið 1840, er Ólafur Jósúason frá Bæ týndist. Svo
virðist sem flestir hafi viljað gleyma þessum atburði
sem fyrst. Það er vandasamt að fjalla um harmleik
sem átti sér stað fyrir 166 árum, þar sem lítið eða
ekkert er til skjalfest um hann í opinberum gögnum.
En margt varðveittist í minni fólks og almannarómur
sagði margt og verður reynt að byggja á þessu tvennu
eins og hægt er í þessum pistli.
A þessum tíma var ólga talsverð í Kvennabrekku-
og Sauðafellssóknum m.a. vegna kirkjubygginga og
mynduðust í hreppnum tvær fylkingar sem tókust
harkalega á og getur það eitt og sér hafa verið orsök
þess að ekkert var fært inn í kirkjubækur um þetta
mál. Kirkjudeilur voru ekki nýjar af nálinni þarna en
fyrstu heimildir um kirkju á Kvennabrekku eru frá
13. öld, það var Maríukirkja og Jóns (Jóhannesar)
postula. Með konungsúrskurði 30. júní 1871 eru
Miðdalaþing og Kvennabrekkuprestaköll sameinuð í
eitt prestakall; Suðurdalaþing. Jafnframt er Kvenna-
brekkukirkja lögð niður og sóknin lögð til Sauða-
fells. Með stjórnarbréfi 15. september 1919 er
Sauðafellskirkja svo lögð niður og kirkja reist á
Kvennabrekku á ný. Svona deilur ásamt öðrum
ágreiningsefnum eru ekki til þess fallnar að efla
samheldnina.
Þokumistur
Samkvæmt upplýsingum sem ég fékk sendar frá
Veðurstofu Islands á liðnu ári, þar sem ég spurði um
veðurfar haustið 1840, eða sem næst 10. október það
ár, kom fram að reglulegar veðurathuganir hafi ekki
hafist fyrr en 1845 í Stykkishólmi. Aftur á móti voru
gerðar daglegar athuganir í Reykjavík frá 1840. í
veðurathuganabók Reykjavíkur stendur að 10.
Úr Miðdölum. Ólafur Jósúason sem týndist í göngum
haustið 1840 var frá Bæ í Miðdölum. (Ljósmynd Björn
Jónsson).
október 1840 hafi verið norðan stormur og skýjað,
hámarkshiti var um 6,5°C en lágmarkshiti 2,5 °C.
Loftvægið er skráð 1005 millibör. Næstu tvo daga er
skráður norðan stormur og loftvogin stígur. Sagt er
að þokumistur sé í lofti og einnig kemur fram að
hugsanlega hafi gert norðan hret með snjókomu til
fjalla sumstaðar á landinu.
Þessi lýsing bendir til þess að myndarleg lægð
hafi verið á norðurleið fyrir austan land samfara
háþrýstisvæði yfir Grænlandi. Hugsanlega gæti hér
verið um að ræða slærna haustlægð, eða leifar felli-
byls, en þá hefðu skaðar vegna hennar trúlega orðið
víðar. Undir þessa kenningu tekur „Árferði á íslandi
í þúsund ár“ bls. 241, en þar er einnig tekið fram að
vetur hafi lagst snemma að 1840 með miklu frosti og
áfreðum. Raunar mun allt áriðl840 hafa orðið mönn-
um þungt í skauti, samkvæmt sömu heimild. Þar
segir einnig að hafís hafi hrakist fyrir norðan land og
austur um og borist suður fyrir land og allt til
Reykjaness.
Það er því ljóst að veðurfarið haustið 1840 hefur
verið heldur kuldalegt og tekið á bæði menn og
málleysingja jafnt í byggð sem á fjöllum uppi. Það
gefur tilefni til þess að geta sér til um hrakninga og
erfiðleika ýmiss konar en best er þó að halda sig við
það fáa sem hægt er að festa hönd á í þessu tilviki.
Týndur
Það er athyglisvert að faðir minn, Guðmundur Pálmi
Ásmundsson, sem er minn aðalheimildarmaður um
þennan harmleik, talaði alltaf um að það hefði verið
þoka þegar Ólafur Jósúason týndist. Undanfarandi
veðurfarslýsing rennir stoðum undir það sem faðir
minn sagði um þokuna, því vitað er að Snjófjöllin
http://www.vortex.is/aett
13
aett@vortex.is