Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2006, Blaðsíða 19

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2006, Blaðsíða 19
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2006 Ættfræðifélagið - aðalfundur Skýrsla stjórnar Eftir síðasta aðalfundi var stjóm Ættfræðifélagsins þannig skipuð: Formaður: Eiríkur Þ. Einarsson, Varaformaður: Hörður Einarsson, Ritari: Anna Guðrún Hafsteinsdóttir, Gjaldkeri: Olgeir Möller Meðstjómandi: Anna K. Kristjánsdóttir í varastjórn voru: Olafur Pálsson og Valdimar Már Pétursson. Stjómin hélt 9 bókaða fundi á árinu. Eins og gengur í félögum, þá koma stjómarmenn og fara. Að þessu sinni eru það þau Hörður Einars- son, Anna Guðrún Hafsteinsdóttir sem eiga skv. lögum að ganga úr stjóm félagsins og Olafur Pálsson úr varastjóm, auk formanns, en öll eru þau kosinn er til tveggja ára. Allir fráfarandi stjórnarmenn gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Skuldlausir félagsmenn um síðustu áramót voru 510, heiðursfélagar eru 9 og erlendir félagar 6. Firnni nýir félagar gengu í Ættfræðifélagið á árinu og á árinu létust fimm félagsmenn, þeir Friðrik Ingþórsson, Jón Jónsson, Kristjana Stefánsdóttir, Vikar Davíðsson og Jóhann Friðjónsson. Vil ég biðja fundarmenn um að rísa úr sætum og minnast þannig þeirra látnu. Fjárhagur félagsins stendur nokkuð styrkum stoðum. Hér á eftir gerir gjaldkeri grein fyrir reikn- ingum félagsins. Félagsfundir voru haldnir mánaðarlega yfir vetrarmánuðina. Meðal fyrirlesara voru Þór Magnús- son fv. þjóðminjavörður, Frans Gíslason, og Erla Hulda Hákonardóttir sagnfræðingar. A félagsfundi mættu að jafnaði 20-30 manns og voru fundir haldnir í þessum fundarsal hér í Þjóðskjalasafninu mánaðar- lega yfir vetrarmánuðina. Við þökkum safninu kærlega fyrir gott samstarf, en við höfum ekki þurft að greiða fyrir afnot af salnum. Kristinn Kristjánsson hefur séð um veitingar á flestum félagsfundum. Er honurn hér með þökkuð frábær störf og við vonumst til að njóta starfskrafta hans áfram. Á árinu voru gefin út fjögur tölublöð af Fréttabréfi Ættfræðifélagsins með fjölbreyttu efni. Ritstjóri Fréttabréfsins undanfarin ár hefur verið Guðfinna Ragnarsdóttir, en ritnefndina skipa, auk Guðfinnu, Ólafur H. Óskarsson og Ragnar Böðvarsson. Ábyrgðarmaður er Eiríkur Þ. Einarsson. Unnið er að skönnun fréttabréfsins og væntanlega fara þau elstu á heimasíðu félagsins þegar hún hefur verið endumýjuð. Á bókamarkaði í Perlunni í febrúar á sl. ári var ákveðið að bjóða manntölin til sölu og gafst það nokkuð vel. Nokkur eintök seldust en þau voru boðin þar á góðu verði. Opið hús er á skrifstofu félagsins í Ármúla 19, 2. hæð, einu sinni í viku, á miðvikudögum, yfir vetrar- tímann, frá byrjun september og út maí. Á opið hús koma um 8-10 manns á hverjum miðvikudegi. Þar eru rædd ýmis mál og menn líta í bækur í bókasafni félagsins. Stjórnannenn og aðrir félagsmenn hafa skipst á að sjá um opið hús til skiptis. Ættfræðifélagið á orðið nokkuð myndarlegt bókasafn sem er til húsa á skrifstofu félagsins í Ármúla 19, 2. hæð. Þangað geta félagsmenn komið á opið hús á miðvikudögum, litið í þessar bækur og spjallað og fræðst um leyndardóma ættfræðinnar. Ættfræðifélagið á marga hauka í homi sem hafa félagið jafnan í huga og færa því bókagjafir. Meðal gefenda var Sögufélag Skagfirðinga sem gaf félag- inu Skagfirskar æviskrár. Stjórnin þakkar öllum velunnurum félgsins hugulsemina í garð félagsins. Ættfræðifélagið heldur úti heimasíðu, www.vortex.is/aett. Heimasíðan hefur því miður ekki verið virk að undanförnu, en það stendur til bóta. Unnið er að endurhönnun á síðunni sem verður tilbúin síðar á árinu. Enn er unnið með Þjóðskjalasafni að undirbúningi að yfirlestri á manntölum sem til eru tölvuskráð hjá safninu. Nokkrir sjálfboðaliðar skráðu sig á sínum tíma til að vinna þetta verk og munu þeir heyra frá safninu von bráðar og fá send gögn til yfirlestrar. Vön- ast er til að þetta verði byrjunin á frekara samstarfi sem felst í skráningu á manntölum í tölvutæku formi sem síðar verða settar á heimasíðu Þjóðskjalasafns. Útgáfustarf Ættfræðifélgsins Þó ekki hafi komið út neitt af manntölum á undan- fömum árum erum við ekki alveg af baki dottin. Nú er að hefjast undirbúningur að útgáfu næstu binda af manntali 1910 í samvinnu við Erfðafræðinefnd. Ætlunin er að vinna ritið á svipaðan hátt og fyrr bindi en þau koma ekki endilega út í réttri bindaröð, heldur eftir því hvemig verkið vinnst. Getur því 15. bindi komið á undan 10. bindi ef verkið vinnst þannig. Áætlað er að Manntalið 1910 verði alls 15-16 bindi ef ákveðið verður að gefa það út í prentuðu formi, sem við stefnum að, en það getur líka verið að það verði einungis gefið út sem tölvudiskur eða sett á Internetið. Það fer algerlega eftir kostnaði við verkið og hvernig unnt er að vinna það á sem hagkvæmastan hátt. Framtíð ættfræðinnar Á síðasta aðalfundi ræddi ég um framtíð ættfræðinnar og talaði þá um að nú væri komið að því að setja kjöt á þau bein sem ættfræðingar hafa hingað til verið að http://www.vortex.is/aett 19 aett@vortex.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.