Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.09.2006, Page 2
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í september 2006
FRETTABREF
íÆttfræðifélagsins
Fróðleiksmolar frá Einari Kristjánssyni
fv. skólastjóra:
Útgefandi:
© Ættfræðifélagið
Ármúla 19, 108 Reykjavík.
S 588-2450
aett@vortex.is
Heimasíða:
http://www.vortex.is/aett
Ritnefnd Fréttabréfs:
Guðfinna Ragnarsdóttir
® 568-1153
audfragn@mr.is
Ólafur H. Óskarsson
S 553-0871
oho@li.is
Ragnar Böðvarsson
S 482-3728
bolholt@eviar.is
Umsjónarmaður
Fréttabréfs:
Guðfinna Ragnarsdóttir
Laugateigi 4, 105 Reykjavík
S 568-1153
gudfragn@mr.is
Ábyrgðarmaður:
Eiríkur Þ. Einarsson
formaður Ættfræðifélagsins
1 indasmari@ simnet.is
Umbrot:
Þórgunnur Sigurjónsdóttir
Efni sem óskasí birt í
blaðinu berist
umsjónarmanni á rafrœnu
formi (tölvupóstur/disketta)
Prentun: Gutenberg
Fréttabréf Ættfræði-
félagsins er prentað í 700
eintökum og sent öllum
skuldlausum félögum. Verð
í lausasölu er 300 kr. Allt
efni sem skrifað er undir
nafni er birt á ábyrgð
höfundar. Annað er á
ábyrgð ritstjórnar.
Frá jarðarför Jónasar Guðbrandssonar í Sólheimum
Jónas Guðbrandsson, bóndi í Sólheimum í Laxárdal, f. 1863 d. 1949, var
jarðsunginn í Hjarðarholtskirkju af sr. Ólafi Ólafssyni á Kvennabrekku.
Jónas var faðir Eyjólfs bónda í Sólheimum þess mikla hestamanns, sem
lést rúmlega 100 ára 1989. Athöfnin hófst með húskveðju á Sólheimum.
Mun þetta hafa verið um Jónsmessuskeið. Tók húskveðjan nokkum tíma,
húsakynnin þröng, en fjölmenni við athöfnina, Fljótlega mun hafa orðið
vart við ölföng á staðnum, því sóknarpresturinn gerðist fljótlega
alldrukkinn. Nokkuð mun þó hafa slegið á áhrif vínsins, því öllum var
Löng leið er frá Sólheimum til Hjarðar-
holts, en Sólheimar eru fremsti bær í
Laxárdal, og var komið kvöld þegar komið
var á kirkjustaðinn. Þegar loksins var
komið með kistuna út í kirkjugarð var
töluvert liðið á kvöldið. Nótt var þó björt
og allir vissu að Sólheimabóndinn gamli
yrði ekki jarðsettur nema einu sinni.
Ekkert lá á.
Eitthvað mun prestur hafa hýrgað sig á
víni, annað hvort drukkið hressilega
hestaskálina í Sólheimum eða hresst sig
eitthvað á kirkjustaðnum, því þegar hann
stóð á grafarbakkanum, hætti mönnum að
lítast á blikuna. Riðaði hann mjög við og
vissu menn ógjörla nema sr. Ólafur mundi
fara í gröfina á undan kistunni. Þó slamp-
aðist þetta af og varð ekki að slysi. Sól-
heimabóndinn komst að lokum einsamall í
sína gröf og fékk sína hvíld.
Jarðhús Guðrúnar Ósvífursdóttur fundið?
í Laxdælu segir svo er Ósvífurssynir komu heim eftir að Kjartan hafði
verið veginn vestur á Svínadal: „Síðan gengu þeir Ósvífurssynir í jarðhús
þat er þeim var búit á laun.„
Oft höfum við heimamenn velt því fyrir okkur hvar þetta jarðhús muni
hafa verið og hafa margar tilgátur verið uppi. Nú hefur svo skipast málum
að ef til vill erum við þar nokkru nær. Fyrir nokkrum árum var Jón Jóel
Benediktsson f.v. bóndi í Sælingsdalstungu að líta eftir kindum í Lauga-
hlíð. Rakst hann þá á jarðhús eða byrgi efst í svo nefndu Hrauni, rétt
neðan við Tófuklett - beint á móti Tungustapa.
Hraun þetta er framhrun úr hlíðinni ofanverðri og nær að kalla allt
niður að Sælingsdalsá. Byrgið rúmar tvo fullorðna menn, tæpast fleiri.
Ósvífurssynir, fimrn að tölu, voru í aðförinni að Kjartani. Urðu sumir
þeirra mjög sárir, sem vænta mátti, og hafa þeir etv. legið heima, en þeir
hressari haldið sig í byrginu. Allir voru þeir bræður gerðir útlægir og
sigldu þeir samsumars og áttu ekki afturkvæmt til Islands. Ekki hafa því
liðið nema 3-4 mánuðir frá drápi Kjartans og þar til þeir bræður fóru af
landi brott, hvort sem þeir hafa nú dvalið í byrginu allan þann tíma.
Þorleifur Magnússon bóndi í Sælingsdal, 1919-1930, sagði mér að
Bjarni Jónsson bóndi á Laugum, 1905-1924, hefði líka fundið jarðhúsið
og sagði Bjami að það væri í Hrauninu.
veittur matur í Sólheimum.
Jónas Guðbrandsson bóndi í
Sólheimum í Laxárdal og
Ingigerður Sigtryggsdóttir
kona hans. Jónas dó tæplega
86 ára 1949 en kona hans dó
1940, 90 ára gömul. Ingi-
gerður varð blind um fimmt-
ugt en sinnti störfum fram í
háa elli.
http://www.vortex.is/aett
2
aett@vortex.is