Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2008, Side 6

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2008, Side 6
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í október 2008 Guðfínna Ragnarsdóttir minnist látinna félaga fyrir hönd Ættfræðifélagsins Minning Páll Lýðsson sagnfræðingur og bóndi frá Litlu-Sandvík f. 7. október 1936 d. 8. apríl 2008 Hlýr, einlægur, kíminn, yfirvegaður og fullur af fróðleik. Þannig vil ég lýsa Páli Lýðssyni. Yfir hon- um var stóísk ró um leið og hann geislaði af frásagn- argleði. Það kemur ef til vill einhverjum á óvart að ég skuli skrifa minningargrein um mann sem byrjar viðtal okkar á því að segja: „Ég er enginn ættfræð- ingur“, en þar var ég honum ekki sammála. Hann var í raun ættfræðingur af guðs náð. Ekki nóg með að hann rekti ættir út og suður, inni að bændatölum og ættarskrám ýmisskonar og gæfi út Sunnlenskar byggðir, heldur var hann ættfræðingur af þeirri gerð sem safnaði fróðleik um fólkið sitt, sveitungana, sýslungana. Hann setti kjöt á beinin, hann skráði urmul af sögum og sögnum, hann stúderaði ættar- einkenni, spáði í hvernig gáfur og hæfileikar gengu í ættir. Hann las umhverfi sitt, fólkið sitt og skráði og safnaði. Það var sama hvort það var skógræktin, mjólkurbúið, slátrunin, ungmennafélagið, ekkert var honum óviðkomandi. Hann óf þéttan þekkingarvef fyrir Sandvíkurhreppinn og Arnessýsluna alla. Hann fór um sveitina sína og tók viðtöl við gamla og unga. Ættarfróðleikurinn fyllti hillur og herbergi, húsið allt og háaloftið með. Allt skipulagt og unnið af einstakri vandvirkni. Enda sagði hann í viðtalinu sem ég átti við hann á jólaföstunni og birtist í fyrsta tölublaði þessa árs: „Það er mér köllun og ástríða að safna og skrá“. Hann lærði það ungur að hverjum þeiin sem fær nám sitt ókeypis ber að gjalda þjóðinni. Páll Lýðsson hafði fyrir löngu greitt fyrir sig. Sumir liggja alltaf á sínu og eru svo hræddir um að aðrir steli frá sér. Ég hef nú aldrei verið hræddur um það og alltaf tekið áhættuna, sagði Páll Lýðsson, sem á langri ævi safnaði, skráði og óf saman sagnfræði, ætt- fræði og mannfræði og vann sleitulaust að því að bjarga fróðleiknum frá því að fjúka út á haf algleymisins. Páll var góður vinur okkar í Ættfræðifélaginu, hélt fyrirlestra, var alltaf boðinn og búinn að aðstoða og var einstakur heim að sækja. Félagið kveður góðan dreng með miklum söknuði og þakkar honuni gengin spor. Minning Halldór Gestsson frá Syðra-Seli í Hrunamannahreppi f. 16. nóv. 1942 d. 28. maí 2008 Það varð stutt á milli þeirra vinanna Halldórs Gestssonar og Páls Lýðssonar. Báðir voru þeir fræði- menn af ástríðu og unnu sleitulaust að sínum hugð- arefnum. Halldór kom ungur maður að Litlu-Sandvík sem vetrarmaður til Lýðs föður Páls og dvaldi þar í fjögur til fimm ár. Skilyrði fyrir ráðningunni var að Páll kenndi honum dönsku en það fór lítið fyrir því, samkvæmt Páli sjálfum. Aftur á móti kenndi hann Halldóri til verka í ættfræðinni og síðan varð ekki aftur snúið. Halldór safnaði saman fróðleik um sína menn; Hrunamenn og síðan einnig Gnúpverja og Tungna- menn. Verkið vatt upp á sig og að lokum ákváðu þeir félagar að gera nafnalista yfir alla bændur í Árnes- sýslu frá 1703 og skráðu þar upplýsingar um hvenær þeir bjuggu á hverjum stað. í tuttugu ár unnu þeir saman að þessu verki og fram á síðasta dag jók Hall- dór við og betrumbætti það. Ég gef Páli orðið um Halldór, vin sinn og félaga, en þau viðhafði hann í viðtali í fyrsta tölublaði Frétta- bréfsins á þessu ári: „Halldór er mjög mikils metinn meðal okkar sem þekkjum til verka hans. Ég tel hann alveg örugglega arftaka Guðna Jónssonar í því hvað hann er víðfeðm- ur ættfræðingur á þessu sviði, Árnessýslu. Hann er með allar bækur, hann les Espólín og Snóksdalín eins og ég veit ekki hvað. Búendatölin eru akkúrat hans verk. Hann einbeitir sér að þeim. Bestu ættfræð- ingarnir eru þannig að þeir einbeita sér að einhverju ákveðnu efni.“ Halldór var maður hlédrægur en ákaflega hjálpleg- ur ef til hans var leitað. Hann starfaði bak við tjöldin með flestum þeim sem sinna ættfræði og tóku saman ábúendatöl og annað af hans svæði, Árnessýslunni, og víðar á Suðurlandinu. Ættfræðifélagið kveður Halldór Gestsson með virðingu og þakkar honum frábær störf í þágu ætt- fræðinnar. http://www.ætt.is 6 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.