Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.12.2008, Page 2
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í desember 2008
FRETTABREF
0ÉTTFRÆÐIFÉLAGSINS
Útgefandi:
© Ættfræðifélagið
Ármúla 19, 108 Reykjavík.
© 588-2450
aett@aett.is
Heimasíða:
http://www.ætt.is
Ritnefnd Fréttabréfs:
Guðfinna Ragnarsdóttir
© 568-1153
gudfragn@mr.is
Ólafur H. Óskarsson
© 553-0871
oho@internet.is
Ragnar Böðvarsson
© 482-3728
bolholt@eyjar.is
Umsjónarmaður
Fréttabréfs:
Guðfinna Ragnarsdóttir
Laugateigi 4,105 Reykjavík
S 568-1153
gudfragn@mr.is
Ábyr gðar maður:
Anna Guðrún Hafsteinsdóttir
formaður Ættfræðifélagsins
annagunnah@simnet.is
Umbrot:
Þórgunnur Sigurjónsdóttir
Efni sem óskast
birt í blaðimi berist
nmsjónarmanni á rafrœnu
formi (tölvnpósturldisketta)
Prentun: Oddi
Fréttabréf Ættfræði-
félagsins er prentað í 700
eintökum og sent öllum
skuldlausum félögum. Verð
í lausasölu er 300 kr. Allt
efni sem skrifað er undir
nafni er birt á ábyrgð
höfundar. Annað er á
ábyrgð ritstjórnar.
Brennunjálssaga -
ekkert tímaskyn
Það er athyglisvert að þegar höfundur Brennunjálssögu er að undirbúa
hina örlögþrúngnustu atburði verksins þá liggur honum minst á, þá hefur
hann tíma til alls, hann minnir á lækni sem skraflar um heima og geima
og kveikir sér í stórum vindli til að sefja umhverfi sitt á undan mikilli
aðgerð, jafnvel skreppur uppá Akranes milli þess sem hann leggur sjúk-
linginn á skurðarborðið og fremur aðgerðina. En meðan höfundur tekur
þessi laungu frávik, hafandi alt aðra hluti á hraðbergi en þá sem honum
eru efstir í hug, hlúir hann að spenningu áheyrandans með virkari meðul-
um en ef hann héldi áfram að klifa á efninu. Með aðskotasögum og „sagn-
fræðilegum“ fróðleiksgreinum gerir hann lesandanum sjónhverfingar og
skynvillu.
Tímatal Njálu hefur valdið þeim undramönnum vanda, sem flokkað
hafa Njálu undir sagnfræði, en þá hefur höfundur vilt með þeim grikk að
binda söguna að nokkru leyti við sagnfræðilega atburði og persónur.
Gott dæmi þess hvemig innskot þjónar til að blekkja tímaskyn
áheyrandans er brottferð Gunnars til útlanda, þar sem hann ratar í nokkur
hefðbundin bardagaævintýri, en þegar hann kemur aftur er Mörður Val-
garðsson sprottinn fram. Samkvæmt sagnfræðilegu tímatali getur Mörður
þessi varla verið af barnsaldri þegar hann er giftur systur ísleifs biskups
Gissurarsonar, sem er fæddur 1006. Hann er laungu orðinn höfðingi,
undirróðursmaður, ráðunautur manna og málafylgjumaður þegar Gunnar
á Hlíðarenda fellur, sem getur ekki eftir sagnfræðilegum útreikníngi ver-
ið seinna en 990. Aldursmunur þeirra systkina, Isleifs biskups og konu
Marðar Valgarðssonar, hlýtur að vera nær fimtíu ámm. Það er því síst
furða þó sérstök tegund fræðimanna hafi viljað leiðrétta Njálu hér sem
víðar, og reynt að sanna að höfundur muni hafa ruglað saman Merði og
föður hans Valgarði - þó leiðréttíngin beri reyndar þá hættu í sér að hund-
rað ára aldursmunur gæti orðið á börnum Gissurar hvíta.
Sömuleiðis fær Höskuldur Hvítanesgoði helsti nauman tíma til að vaxa
upp, en stekkur fram alskapaður, eins og Mörður, meðan sagan bregður sér
frá. Hann getur ekki með sköpuðum ráðum verið meira en fermdur þegar
Njáll leitar honum kvonfángs og fær honum goðorð, en til þess að teygja
tímann eru innsettir einir níu aðskotakaflar, Lýtingsþáttur og kristniþáttur
samslúngnir, uns áheyrandinn er búinn að gleyma hvað tímanum líður.
Síðan heldur söguefnið áfram, Valgarður tekur að rægja Njálssonu við
Mörð og undirbúa víg Höskuldar.
Nútímaskáldi myndi takast flest sýnu ver en höfundi Njálssögu, en á
þessa refilstigu mundi hann ekki rata, sá auli er varla fæddur á tuttugustu
öld að honum sé ekki tímaskyn í blóð borið, en þetta skyn var hjá mið-
aldamönnum furðu sljótt. Á þrettándu öld studdust menn enn ekki alment
við ártalsnotkun í daglegu lífi, en ef þeir vildu vanda sig rniðuðu þeir tím-
ann við ár liðin frá viðburðum sem þeim þóttu merkir. Fyrir bragðið eru
tímaskekkjur af öllu tagi föst regla í miðaldabókmenntum. Njáluhöfundur
leynir tímavillum sínum sjálfrátt eða ósjálfrátt með listbrögðum, svo mað-
ur tekur ekki eftir þeim nema við nokkuð nákvæman lestur eða samanburð
við sagnfræðilega vitneskju.
Halldór Kiljan Laxness:
Minnisgreinar um fornsögur (44 bls.).
Tímarit Máls og menningar 1. hefti 1945.
Fyrirsögnin er blaðsins.
Sendandi: Guðjón Óskar Jónsson.
http://www.ætt.is
2
aett@aett.is