Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.12.2008, Blaðsíða 21

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.12.2008, Blaðsíða 21
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í desember 2008 1890.“ Pam leit yfir fyrstu blaðsíðuna á handskrifuðu minnispunktunum hans og við henni blöstu nöfnin Jónatan Jónatansson og Kristbjörg Bjamadóttir. í mikilli geðshræringu kallaði Pam á Laxdalssysturnar sem vom um það bil að ganga út úr dyrum ættfræði- setursins: „Komið aftur, komið aftur, hér er frændi ykkar. Þið eruð frændsystkin." Systurnar og Sigþór urðu yfir sig undrandi og varð mikið um þennan fund. Þau eyddu saman því sem eftir var af deginum, ræddu fjölskyldusögu sína og skiptust síðan á nöfn- um, heimilisföngum og símanúmerum. Eitt af þeim vandamálum sem Sigþór, auk margra annarra íslendinga, lentu í í leit sinni að ættingjum eru breytingar á nöfnum. Eiginmaður Sigríðar kall- aðist Sigmundur Sigurðsson á íslandi. Þegar fjöl- skyldan flutti til Norður Dakota komust þau að raun um að margir höfðu tekið sér eftirnafnið Sigurdsson. Fjölskyldan ákvað því að breyta nafninu sínu í Lax- dal af því að þau höfðu flutt úr Laxárdal á íslandi. En það voru ekki aðeins íslensku landnemarnir sem breyttu eftirnöfnunum. Konurnar hættu að fylgja þeim íslenska sið að kenna sig við föður sinn eða ein- staka sinnum við móður sína. I staðinn tóku þær upp nöfn manna sinna eins og tíðkast í Norður Ameríku. Eitt af markmiðum ættfræðisetursins hefur verið að reyna að sameina frændsystkin frá fslandi frændsystk- inum sínum vestanhafs. í ár varð þetta að opinberu markmiði okkar og okkur tókst að sameina mörg frændsystkin. Við vinnum þannig að fyrstir koma, fyrstir fá. Við verðum líka að setja þjónustunni takmörk þar sem tími okkar er ekki óendanlegur. Við gefum tíma okkar og vinnu við þessa ættfræðileit. Margt fólk langar að sýna þakklæti sitt fyrir vinnuna og tekið er á móti fjárframlögum til ættfræðisetursins hjá Icelandic community association in Mountain North Dakota. Hér á eftir er getið um nokkur helstu afrek okkar á liðnu ári: Valgerður Jónsdóttir frá íslandi er langafabam Jóns Benónýssonar. Hún var að leita að afkomend- um Valmundar Benónýssonar Sveinssonar Swearson. George tókst að koma Valgerði í samband við fjöl- skyldu Swearson í Towner í Norður Dakota. Guðríður Asa Jóhannesdóttir komst í samband við þremenninga sína í Samsonfjölskyldunni, þær Lorraine Johnston og Elaine Timke frá Drayton. Gísli Friðbjörnsson Samson giftist Guðrúnu Ingibjörgu Rafnsdóttur í Ameríku. Guðrún var systir ömmu Guðríðar Asu Jóhannesdóttur. Síðan komu fleiri meðlimir Samson fjölskyldunnar til Park River til þess að hitta Guðríði Asu. Guðný Margrét Ólafsdóttir hitti Lyman og Nancy Bertsch frá Bossier City í Louisiana og Jack Long frá Bismark í Norður Dakota. Jack og Lyman eru systk- inaböm og báðir þremenningar við Guðnýju. Grímkell Amljótsson frá íslandi hitti Edward T Bernhoft frá Los Angeles í Kaliforníu og Bernhoft- fjölskylduna frá Mountainsvæðinu. Margir hittu einnig frændsystkin sín í Gimli í Pam (Olafson) Furstenau hefur ásamt George Freeman helgað sig einstakri lcit sem snýst um það að finna og endurskapa tengsl milli íslendinga sem koma í heimsókn vestur um haf og vestur-íslenskra frænda þeirra. Manitoba. Sumir náðu ekki að hitta frændfólk sitt í ferðinni en fengu netfang þess eða símanúmer. Magnús Magnússon Norðdahl kom með hóp frá Bændaberðum. Amma hans var Guðný Gestsdóttir systir Gestnýjar Gestsdóttur sem fædd var 1889. Hún giftist Lúðvík Kristjánssyni og þau áttu a.m.k. sjö böm í Kanada. Gagnasafn Hálfdans Helgasonar sem og hjálp hans hefur verið okkur ómetanlegt. Við urðum einnig þeirrar ánægju aðnjótandi að fá Hálfdan í heimsókn lífslifandi á vef ættfræðisetursins. Við styðjumst við fjölda heimilda á ættfræðisetr- inu. Þar má nefna skýrslur kirkjugarða Pembinahér- aðs, héraðssögur, manntöl, dánarskrár Norður Dakóta, ancestry.com, innflytjendaskrá (Naturalization Records), BLM records, Vesturfaraskrá, Vestur-ís- lenskar æviskrár og svo okkar eigin gagnagrunna. Við höfum einnig fengið góðar upplýsingar frá Magnúsi Haraldssyni, frá Valgeiri Þorvaldssyni á Vesturfarasetrinu á Hofsósi og Nelson Gerrard þeim fræga ættfræðingi og rithöfundi í Manitoba. George Freeman hefur safnað saman í þrjú bindi, helstu æviágripum allra kvenna sem voru meðal land- nema Pembinahéraðs. Þetta eru upphaflega handskrif- aðar sögur yfir 1000 kvenna. Þessar sögur voru svo vélritaðar upp um 1940 til þess að heiðra minningu og anda þeirra kvenna sem gerðust landnemar í Pembina- héraði. Þær þrengingar og upplifanir sem lýst er í ævi- sögum þessara fyrstu kvenna héraðsins mála lifandi og litríka mynd af lífi landnemanna í Pembinahéraði. Hægt er að panta þessar bækur eða skoða efnisyfirlitið á vefsíðunni http://www.rootsweb.ancestry.com/~nd- pembin/html/pioneerdaughters.html. Pam er vefstjóri margra vefsíðna sem fjalla um Pembina County (Pembina hérað) og íslenskan uppruna hennar. Vefsíð- an fyrir ættfræðisetrið og „Deuce of August“ er www. august2nd.com. Netfangið www.thingvalla.org er vef- síða sem er íslensku kirkjunni til heiðurs. Þriðja vef- síðan http://www.rootsweb.ancestry.com/~ndpembin/ pembina.htm er ókeypis ættfræðivefsíða sem ætt- fræðisetrið heldur úti. Þar er að finna upplýsingar um kirkjugarða, kirkjur, gagnagrunna, sögulega staði, kort, fólk, staði, ættfræðiágrip þeirra landnámskvenna, sögur úr héraði, krækjur og fyrirspurnir. http://www.ætt.is 21 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.