Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.12.2008, Side 22
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í desember 2008
Námskeið um ættfræðiheimildir
Þjóðskjalasafn íslands hélt í nóvember sl. kynningarnámskeið um œttfrœðiheimildir í samvinnu við
Ættfrœðifélagið. Námskeiðið var íþrjú skipti, tvisvar sinnum 40 mínútur. Þátttaka var mjög góð og
voru þátttakendur afar ánœgðir með námskeiðið. Kynntir voru helstu heimildaflokkar, s.s. manntöl,
kirkjubœkur, legorðaskrár, skiftabœkur og annað sem varpað getur Ijósi á sögu einstaklinga. Fjallað
var um tilurð heimildanna og skýrt hvernig þœr geta nýst við rannsóknir á persónusögu. Leiðbein-
endur voru Jón Torfason, Björk Ingimundardóttir og Kristjana Kristinsdóttir, allt starfsmenn Þjóð-
skjalasafnsins. Fyrirhugað er annað námskeið í vor, þar sem þátttakendur verða cefðir íað lesaforna
skrift, en hún er mörgum þrándur ígötu. Það námskeið verður auglýst síðar.
Það var hópur eftirvæntingarfullra ættfræðiáhuga-
manna sem settist á skólabekk í Þjóðskjalasafninu nú
í nóvember. Tilefnið var að safnið hafði í samvinnu
við Ættfræðifélagið skipulagt námskeið um ættfræði-
heimildir.
Hugmynd um námskeiðahald kom upp á fundi
Þjóðskjalavarðar og starfsmanna safnsins með full-
trúum Ættfræðifélagsins síðasta sumar. Félaginu var
rnjög umhugað um að slíkt námskeið færi fram enda
féll það mjög vel að þeim áformum urn verkefni sem
stjórn félagsins hafði rætt á fundum sínum.
Fyrir mig, sem áhugamann um ættfræði, var þetta
einstakt tækifæri. Þarna gafst möguleiki á að kynnast
öllum helstu heimildum sem til eru um ættfræði á
Islandi og þar með sögu ættmenna minna í smæstu
atriðum, í marga ættliði. Þar að auki fengum við leið-
sögn frábærra fræðimanna í gegnum þessar heimildir,
studda góðum gögnum, þar með talin afrit af skjölum
safnsins, með frumritin ekki langt undan. Námskeið-
ið fór fram á Þjóðskjalasafninu og var í þrjú skifti, 2
sinnum 40 mínútur hvert.
Leiðbeinendur voru: Kristjana Kristinsdóttir,
Björk Ingimundardóttir og Jón Torfason, öll starfs-
menn Þjóðskjalasafnsins.
Fyrsta daginn var farið yfir manntöl, prestþjónustu-
bækur, sóknarmannatöl og veðmálabækur. Flestir sem
eitthvað hafa fengist við ættfræðiathuganir þekkja
þessi gögn, enda ef til vill aðgengilegustu gögnin fyr-
ir áhugafólk. Farið var yfir þróun þessarra heimilda,
hvernig kröfur opinberra aðila til embættismanna uxu
í tímans rás og þar með gæði gagnanna. Margir eiga
erfitt með að lesa þessi gömlu skjöl og því hafði Björk
Ingimundardóttir prentað þau stafrétt, til þess að auð-
velda okkur að lesa skjölin og í leiðinni æfa okkur
svolítið í að lesa gamla skrift. Margar skemmtilegar
sögur flutu svo með um menn og málefni og tengd-
ust viðfangsefninu. Leiðbeinendur lögðu fram lista
yfir verð- og mælieiningar á íslandi og orðskýringar
þar sem skýrt var út hvernig verðgildi jarðeigna var
reiknað, hvað var kúgildi, hvað var alin, hestburður,
fjórðungur, fardagar, tíund o.s.frv.
Annan daginn var farið yfir úttektir og úttekt-
Jón Torfason og Björk Ingimundardóttir Ieiddu þátttakendur faglega um heimildafrumskóginn. (Ljósmvnd Guöfinna
Ragnarsdóttir)
http://www.ætt.is
22
aett@aett.is