Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2012, Síða 3
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2012
Birna Lárusdóttir:
Elínborg Lárusdóttir
í minni manna
Árið 1935 komfram á ritvöllinn rúmlega hálf
fimmtug kona og sendi frá sér smásögur sem
hún nefndi einfaldlega Sögur. Hún átti síðan
eftir að verða einn afkastamesti rithöfundur
landsins. Og bækur hennar voru hreint ekki
einsleitar. Hún skrifaði skáldsögur úrsamtím-
anum, sögulegar skáldsögur, smásögur, Ijóð,
leikrit, dýrasögur, æviþœtti, þjóðlegan fróð-
leik og bækur um dulræn efni. Alls skrifaði
hún rúmlega 30 bækur. I Héraðsskjalasafni
Skagfirðinga eru varðveitt eftir hana sjö
óprentuð leikrit, eitt þeirra var sett á svið í
Iðnó.
I mörg ár var hún einn mest lesni höfundur
í bókasöfnum og deildi þeim vinsœldum með
sýslunga sínum, Guðrúnu frá Lundi. Hér
fjallar sonardóttir Elínborgar, Birna Kristín
Lárusdóttir, bókmenntafrœðingur um ömmu
sína í minni manna.
Hér á eftir verður fjallað um þennan rithöfund,
Elínborgu Lárusdóttur, og líf hennar í minni manna.
Fyrst verður greint í stórum dráttum frá ætt hennar og
uppruna, en þeir þættir höfðu afgerandi áhrif á skrif
hennar og sjálfsmynd löngu seinna.
Elínborg hafði sterka grenndarvitund sem sést vel
í skrifum hennar. Hugtakið „grenndarvitund" vísar til
vitundar manna um sitt nánasta umhverfi, sögu þess
og sérstöðu. Elínborg var trú uppeldi sínu og menn-
ingararfi sem átti djúpar rætur í Skagafirði, þar voru
hennar sæludalir.
A þeim tímum sem Elínborg lifði urðu stórfelld-
ar þjóðfélagsbreytingar. íslenskt samfélag breyttist
úr gamla bændasamfélaginu, sem hafði staðið Iítið
breytt frá landnámi í iðnaðar-, markaðs- og tækni-
samfélag, með öllu því raski, búsetu og þjóðfélags-
legu sem því fylgdi. í bændasamfélaginu lágu ræt-
ur fólks sem ólst upp á fyrri hluta tuttugustu ald-
ar og þangað sóttu rithöfundar og ljóðskáld efnivið
sinn því að flestir leita til uppruna síns á einhverjum
tímapunkti ævinnar.
Elínborg yfirgaf sína sveit kornung, og átti þang-
að ekki afturkvæmt nema sem gestur. Seinna var hún
nauðbeygð til að yfirgefa sunnlenska sveit sem var
orðin henni kær. Báðum þessum sveitum unni hún og
gerði menningu þeirra, siðum og venjum, skil í skrif-
um sínum.
Söguefnin í sínum stærstu verkum sækir hún á
æskustöðvar sínar og: „Ýmsar mannlýsingar byggir
Elínborg á raunverulegum persónum sem hún þekkti
sjálf í æsku eða af sögusögnum“. Hún virðist hafa
fundið hjá sér þörf fyrir að rifja upp og varðveita
sameiginlega fortíð Skagfirðinga á breytingatímum,
það var hennar leið til að styrkja sitt fólk í breyttu
samfélagi.
Sterk héraðsvitund
Héraðsvitund og staðarvitund eru greinar af sama
meiði, umhverfi og staðir móta fólk og kemur fram
í því hvernig skáld miðla sýn sinni í skáldverkum
sínum. Það er mikilvægt að eiga sinn stað í tilver-
unni, hann tengist sjálfsvitund, hugmyndum, líðan og
minningum og er gerður af þessu öllu. Staðir hafa allt-
af skipt Islendinga miklu máli. 1 Islendingasögunum,
elstu bókmenntum þjóðarinnar, er alltaf gerð grein
fyrir hvaðan helstu persónur komu, og enn er spurt
um ættir og uppruna og út frá því eru viðkomandi
einstaklingar staðsettir. Það hefur lengi þótt gott að
kunna skil á stöðum og fólki sem tengist þeim.
Birna Kristín Lárusdóttir
Birna Kristín Lárusdóttir bókmenntafrœðingur
hélt erindi um skáldkonuna Elínborgu Lárusdóttur
á októberjundi Ættjrœðifélagsins. Erindið kallaði
hún „Elínborg Lárusdóttir í minni manna“ Hún
byggði erindið á munnlegum heimildum, aðal-
iega samtölum við fólk sem þekkti Elínborgu, en
Elínborg var amma Birnu Kristínar. Birna Kristín
erfœdd 22.júní 1946. Birna var kúabóndi á Efri-
Brunná í Dalasýslu í 34 ár ásamt manni sínum
Sturlaugi Jólianni Eyjólfssyni, af Ormsætt. Þau
Birna og Sturlaugur eiga fjögur börn: Eyjólf,
Sigríði, Sólveigu og Helgu Helenu. Árið 1997
fluttu þau á höfuðborgarsvœðið. Þá ákvað Birna
að setjast aftur á skólabekk, 51 árs gömul. Hún
lét ekki staðar numið við stúdentspróf, en hóf að
því loknu grunnnám í þjóðfrœði við félagsvís-
indadeild Háskóla íslands. Meistaraprófinu iauk
hún svo í bókmenntum frá hugvísindadeild. Hún
segist hafa ákveðið að fara í bókmenntirnar til
þess að gera ömmu sinni, Elfnborgu Lárusdóttur
rithöfundi, skil.
http://www.ætt.is
3
aett@aett.is