Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2012, Side 14

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2012, Side 14
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2012 Guðmundur Sigurður Jóhannsson: Bollaleggingar um Símon Sigurðsson bónda á Mosfelli í Svínadal og meint börn hans - innlegg í húnvetnska og skagfirska ættfræði Símon Sigurðsson var fœddur um 1676. Foreldrar hans voru lijónin Sigurður Guðmundsson og Vildís Símonsdóttir, sem bjuggu í Keldudal í Hegranesi. Um þessi hjón er fjallað í Ættatölub. Jóns Espólíns, 5569, börn þeirra talin, en hvorki gerð grein fyrir mökum barnanna né afkomend- um þeirra. Símon bjó í Melkoti á Langholti 1700-1703 og á Mosfelli í Svínadal 1731- 1744, að hann brá búi, en mun hafa haldið sig í Svínavatnshreppi nœstu ár. Kona Símonarerókunn,en vitað er að hann átti tvö börn í hórdómi, hið eldra með Guðnýju Sveinsdóttur, f. um 1718, d. 19. sept. 1783 í Hólabæ í Langadal, vinnukonu í Svínavatnshreppi. Foreldrar hennar voru hjónin Sveinn Oddsson og Solveig Jónsdóttir, sem bjuggu á Grund í Svínadal. Guðný giftist síðar Guðbrandi Þórarinssyni og bjuggu þau í Sólheimum í Svínavatnshreppi 1744-1745, á Móbergi í Langadal 1745-1746, á Refsstöðum á Laxárdal fremri 1751- 1754, á Vesturá á Laxárdal fremri 1755-1758 og á Strjúgsstöðum í Langadal 1758-1763. Guðbrandur andaðist á árunum 1762-1774 og bjó Guðný ekkja í Hólabæ 1773 til æviloka. Barn Símonar og Guðnýjar hefur fæðst 1739 eða 1740. „Símon Sigurðsson galt í sakeyri fyrir fyrsta hórdómsbrot fyrir sig og Guðnýju Sveinsdóttur...“, segir í Manntalsbók Húnavatnssýslu við árið 1740. Yngra hórbam sitt átti Símon með Valgerði Jónsdóttur í Svínavatnshreppi. Hinn 9. maí 1750 „var upplesin stefna til Símonar Sigurðssonar að mæta til andsvara og dóm að líða á Svínavatnsmanntalsþingi uppá hans annað hórdómsbrot með Valgerði Jónsdótturframið“,segiríDómabókHúnavatnssýslu. Þetta barn Símonar og Valgerðar hefur fæðst 1749 eða 1750. í Manntalsbók Húnavatnssýslu er að finna eftirfarandi klausu um greiðslu sakeyris við árið 1753: „Símon Sigurðsson f[yrir] þriðja og Valgerður Jónsdóttir annað [brot]...“, og er þetta fært í bókina strax á eftir tíundarreikningi Bólstaðarhlíðarhrepps, sem virðist gefa til kynna að í öllu falli annað þeirra Símonar og Valgerðar, ef ekki bæði, hafi þá verið til heimilis í þeim hreppi. Fremur en gera því skóna, að þarna kunni að hafa verið um að ræða greiðslu á eftirstöðvum sakeyris fyrir hórdómsbrotið, virðist sennilegra að Símon hafi skilið við eiginkonu sína eða hún dáið einhvern tíman á árabilinu 1750-1753, og Símon átt annað barn með Valgerði á því tímabili, þá í lausaleik, með því manntalsbókin greinir, að um sé að ræða Símonar „þriðja“ og Valgerðar „annað“ brot. Þetta barn Símonar og Valgerðar hefur fæðst 1752 eða 1753. í ritgerðinni Gátan um uppruna Bjargar á Skeggsstöðum, sem birtist í Fréttabréfi Ættfræðifélagsins í febrúar 2010, fjallaði ég um barn- eignir Símonar og Valgerðar, og gat mér þess til að hér mundi vera um að ræða Valgerði Jónsdóttur, sem var heimilisföst í Gautsdal á Laxárdal fremri 1762, sögð 48 ára gömul. Sú kenning mín virðist mér nú fráleit. Hitt er miklu sennilegra, að hér sé um að ræða Valgerði Jónsdóttur, ekkju Einars Vigfússonar bónda á Ytri-Löngumýri í Blöndudal, og skal nú gerð fyrir þeim hjónum. Einar Vigfússon var fæddur um 1665 og andaðist 1746 eða 1747. Faðir hans var Vigfús Magnússon bóndi í Seyluþingsókn í Skagafjarðarsýslu. Einar bjó í Dæli í Sæmundarhlíð 1700-1703, á Stóru-Seylu á Langholti 1712-1713, í Blöndudalshólum í Blöndudal 1734-1735, í Tungunesi á Bakásum 1736-1743 og á Ytri-Löngumýri 1743 til æviloka. Valgerður var seinni kona Einars. í Manntalsbók Húnavatnssýslu er að finna klausu við árið 1741 um restans sakeyri [greiðslu eftirstöðva sakeyris] „hjá Einari Vigfússyni og Valgerði Jónsdóttur" í Svínavatnshreppi. Þau hafa því átt saman barn í lausaleik ekki seinna en 1740 og gengið í hjúskap skömmu eftir það. Valgerður bjó ekkja á Ytri-Löngumýri 1747-1752, að hún brá búi, en hefur þá sennilega farið að Eyvindarstöðum í Blöndudal innan Bólstaðarhlíðarhrepps. Hún drukkn- aði í Blöndu 14. október 1755, þá til heimilis á Eyvindarstöðum, „hrapaði þar fyrir neðan bæinn“, segir í Kirkjubók Blöndudalshólaprestakalls. Einhver mesta gersemi, sem er varðveitt í Héraðsskjalasafni Austur-Húnavatnssýslu, er gömul hreppsbók úr Svínavatnshreppi. Færslur í hana hefj- ast á árinu 1735 og enda á árinu 1777. Af bókinni má marka, að Símon Sigurðsson hefur verið fátæk- ur maður, því að börnum hans, sem ekki eru nafn- greind, er lagt til af sveitinni á árabilinu 1735-1745. Árin 1745, 1747 og 1748 er Halldóri Símonssyni og Sveini Símonssyni lagt til af Svínavatnshreppi og verður ekki betur séð en að þeir muni hafa verið synir Símonar Sigurðssonar. Guðríði Símonsdóttur er lagt http://www.ætt.is 14 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.