Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2012, Side 15

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2012, Side 15
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2012 til af Svínavatnshreppi á árabilinu 1753-1760 og kann hún einnig að hafa verið dóttir Símonar Sigurðssonar, þó ekki virðist mér það jafn borðleggjandi eins og í tilvikum þeirra Halldórs og Sveins. Þorsteinn Símonsson bóndi á Litla-Búrfelli í Svínavatnshreppi 1772-1774 og á Skinnastöðum á Asum 1774-1783 hefur mjög sennilega verið sonur Símonar Sigurðssonar. í áður tilvitnaðri ritgerð minni Gátan um uppruna Bjargar á Skeggsstöðum, setti ég fram þá tilgátu, að Þorsteinn ntuni hafa verið barnið sem Valgerður og Símon áttu saman árið 1749 eða 1750. Er það vel mögulegt, en fullnaðarvissu skort- ir. Að því gefnu, að Símon og Valgerður hafi eign- ast annað barn á árabilinu 1750-1753, eins og bók- staflega má lesa út úr Manntalsbók Húnavatnssýslu, þá verður ekki betur séð en að þar muni vera um að ræða Sigríði Símonsdóttur, konu Hrólfs Þorsteinssonar bónda í ípishóli á Langholti 1801. I Manntali á Islandi 1801, er Sigríður sögð 49 ára gömul, og ætti eftir því að vera fædd um 1752, en í Manntali á Islandi 1816 er hún sögð 66 ára gömul, og ætti eftir því að vera fædd um 1750. Manntalið 1816 tilgreinir fæðingarstað Sigríðar. Hún var fædd á Eyvindarstöðum í Blöndudal! Svo sem áður gat, brá Valgerður Jónsdóttir, ekkja Einars Vigfússonar, búi á Ytri-Löngumýri árið 1752 og hverfur þá af skrám yfir framteljendur í Svínavatnshreppi. Er ekkert því til fyrirstöðu, að hún hafi þá þegar farið í Eyvindarstaði og fætt barn sitt þar. Þegar þetta allt er lagt saman, er ekki hægt að velja Sigríði Símonsdóttur á ípishóli sennilegri foreldra en Símon og Valgerði. Sigríður hefur til þessa verið rangt ættfærð og er þar við mig einan að sakast. I stað þess að vera að burðast með einhverjar annarlegar hugmyndir um „fræðimannsheiður“ sem fela í sér að maður sé yfir það hafinn að gera skekkjur, vil ég miklu fremur gera hreint fyrir mínum dyrum, þegar ég hef staðið sjálfan mig að ranglátri ráðsmennsku. í Skagfirzkum æviskrám 1850-1890, II, bls. 254, ættfærði ég Sigríði hiklaust sem dóttur hjónanna Símonar Egilssonar og Málfríðar Þorkelsdóttur, sem bjuggu í Finnstungu í Blöndudal 1753. Fljótt á litið virtist sú ættfærsla borðleggjandi. Egill Arnason og Jórunn Símonsdóttir, foreldrar Símonar, bjuggu síðast á Eyvindarstöðum. Þorkell Björnsson og Guðríður Jónsdóttir, for- eldrar Málfríðar, bjuggu á Eyvindarstöðum alla sína búskapartíð. Og Símon Egilsson var búlaus á Eyvindarstöðum 1739-1741 eða lengur. En þegarfer- ill þeirra hjóna, Símonar og Málfríðar, er skoðaður nánar, sést að þau bjuggu í Tungunesi 1743-1747 og í Finnstungu 1751-1763. Að vísu verður ekki séð hvar þau héldu sig á árabilinu 1747-1751, en vel geta þau hafa farið rakleiðis búferlum frá Tungunesi að Finnstungu árið 1747 og í öllu falli er engin vissa fyr- ir því að þau hafi skotist í Eyvindarstaði áður en þau stofnuðu til búskapar í Finnstungu. í annan stað er Sigríður ekki talin meðal barna Símonar og Málfríðar í Ættatölub. Jóns Espólíns, 1844-1845, þar sem gerð Ljósrit úr Manntalsbók Húnavatnssýslu við árið 1740. Hér er efst á blaði fjallað um barneign Símonar Sigurðssonar og Guðnýjar Sveinsdóttur. Barn Símonar og Guðnýjar hefur fæðst 1739 eða 1740. „Símon Sigurðsson galt í sakeyri fyrir fyrsta hórdómsbrot fyr- ir sig og Guðnýju Sveinsdóttur...“, segir í Manntalsbók Húnavatnssýsiu við árið 1740. er grein fyrir þessu fólki, sem í sjálfu sér útilokar ekki neitt, því stundum vantar börn í systkinahópa hjá ættatöluhöfundum. En þegar það er virt, að þau hjón, Hrólfur og Sigríður, voru í vinnumennsku hjá Jóni Espólín sjálfum í Viðvík í Viðvíkursveit 1806-1807, horfir málið allt öðru vísi við, og er í ólíklegasta lagi að Espólín hefði láðst að færa gamalt hjú sitt inn í viðkomandi systkinahóp. í Ættatölub. Jóns Espólíns, 3961, er Sigríður aðeins sögð „úr Húnavatnssýslu“, þegar gerð er grein fyrir henni sem eiginkonu Hrólfs Þorsteinssonar. I þriðja lagi er rétt að taka fram, að Sigríður átti á yngri árum barn með Sveini Jónssyni bónda í Finnstungu, sem var svili Símonar Egilssonar, en Björg Þorkelsdóttir, eiginkona Sveins, var alsyst- ir Málfríðar Þorkelsdóttur, eiginkonu Símonar. Þessi barneign átti sér stað 15. október 1780, og sjást þess engin merki í legorðsmálaskjölum úrHúnavatnssýslu, að um mægðir hafi verið að ræða á milli Sveins og Sigríðar. Er það í ólíklegasta lagi, ef ekki hefði ver- ið tekið sérstaklega fram í slíkum skýrslum, ef barns- móðir manns, hefði verið systurdóttir eiginkonu hans! Nú verður í framhaldinu gerð grein fyrir meintum börnum Símonar Sigurðssonar: Guðríður Símonsdóttir, sem þáði af sveit í Svínavatnshreppi á árabilinu 1753-1760, en hverf- ur þá af skrá yfir þurfalinga í hreppnum. Tekið skal fram, að hér mun alls ekki vera um að ræða sam- http://www.ætt.is 15 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.