Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2012, Side 22
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2012
Björnssonar á Eyvindarstöðum. - Fór búferlum að
Eiríksstaðakoti.
1898-1931 Jón Jónsson og Ósk Gísladóttir. -
Brugðu búi. fóru í húsmennsku á sama stað. Jón
reisti bú á sama stað 1940. Ósk bjó síðar í Flatey í
Flateyjarhreppi, Barðastrandarsýslu. Hún dó 29.
janúar 1956 á Blönduósi.
1929-1937 Gísli Blöndal Jónsson og Guðlaug
Charlesdóttir.-Gísli dó7.janúar 1937 á Sauðárkróki.
Guðlaug bjó áfram.
1937-1940 Guðlaug Charlesdóttir, ekkja Gísla
Blöndals Jónssonar á Eyvindarstöðum. - Brá búi,
fór úr Bergsstaðaprestakalli, varð síðar ráðskona í
Skálpagerði í Öngulsstaðahreppi, Eyjafjarðarsýslu.
1940-1941 Jón Jónsson. - Brá búi, fór í hús-
mennsku á sama stað, reisti bú á sama stað 1943.
1940-1947 Ólafur Björnsson og Jósefína Þóranna
Pálmadóttir. - Fóru búferlum að Neðra-Holti í
Torfalækjarhreppi.
1943-1948 Jón Jónsson. - Brá búi, var kyrr á sama
stað. Jón dó 23. janúar 1962 á Blönduósi.
1948-1957 Steingrímur Bergmann Magnússon og
Rrkey Kristín Magnúsdóttir. - Steingrímur dó 13.
mars 1975 í Reykjavík. Ríkey dó 9. september 2005
í Reykjavík.
1973-1978 Bjarni Steingrímur Sigurðsson og
Isgerður Arnadóttir. - Isgerður dó 29. september
2006. Bjarni dó 15. júní 2011.
Ásmundur Uni Guðmundsson:
„Þessa kind á ég“
Atburðir þeir sem hér frá greinir áttu sér stað fyr-
ir meira en heilli öld. Þetta er frásögn föður míns,
Guðmundar Pálma Ásmundssonar, og sagði hann
mér frá þessum atburðum þegar ég var um tvítugt.
Faðirminn var fæddur 31. desember 1891 áAkranesi.
Faðir hans var Asmundur Guðmundsson f. 9. maí á
Englandi í Lundarreykjadal. Hann drukknaði 29. júlí
1898. Kona hans hét Guðrún Þorleifsdóttir f. 8. maí
1851, d. 15. janúar 1899. Hún var af hinni stóru og
fjölmennu ætt sent kennd er við Háafell í Miðdölum í
Dalasýslu. Asmundur bjó á Krossi í Lundarreykjadal
1885-1888, Háuhjáleigu í Innri-Akraneshreppi 1888-
1889, Efstabæ á Akranesi 1889-1890, þá byggir hann
sér torfbæ sem hann kallaði Bæ. Bær stóð undir hall-
anum þar sem núverandi Brekkubæjarskóli stendur
nú.undir malbikinu á mótum sjúkrahússins og listaset-
ursins Kirkjuhvolls. I þessunt bæ er pabbi fæddur. En
búsetan í Bæ varð stutt eins og hér verður frá sagt.
Þau stóðu á sjávarbakkanum hjá Garðbæ
Guðmundur faðir minn og leiksystir hans, sem hann
minnti að héti Halldóra, og horfðu á feður sína leggja
af stað í fiskiróður. Báturinn var frá Garðbæ og í eigu
formannsins. Þau stóðu hlið við hlið leiksystkinin
og héldust í hendur, það var logn og ládauður sjór.
Nokkru eftir að báturinn var horfinn úr augsýn fór að
kula og veðrið ágerðist ört. Tíminn líður og það fer
að brima all hressilega. Farið er að horfa eftir bátnum
en hann kernur ekki. Svo líða dagarnir einn af öðrum
og þar kemur að báturinn finnst við stjóra, marrandi í
hálfu kafi á miðum sem heita Svið. Þá hafði stjórafær-
ið marið far í borðstokkinn og var séð að oft hefði ver-
ið bætt við stjórann, áður en mennirnir hurfu í hafið.
Þegar þetta vitnaðist beið hreppstjórinn ekki boð-
anna en framkvæmdi uppboð á þeim fátæklegu eig-
um sem til voru. (Nafn hreppstjórans nefndi pabbi
ekki). Var svo hart fram gengið að móðir og böm rétt
héldu þeim fötum sem þau stóðu í. Meðal annars var
leidd fram mórauð kind í eigu föður míns sem þá var
á sjöunda árinu. Þá kallaði hann í örvæntingu: „Þessa
kind á ég.“
Honum var sagt að þegja og hafa sig í burtu, það
gekk ekki og þá var hann dreginn burtu grátandi.
Ömmu minni, Guðrúnu, var ráðstafað að mig
minnir að Ósi í Skilamannahreppi, ekki mundi pabbi
hvert Ingibjörgu, elstu systur hans var ráðstafað en
Guðrúnu systur hans var ráðstafað í uppfóstur til
Jóns Guðmundssonar föðurbróður hennar og konu
hans Þórdísar Björnsdóttur en þau bjugu á Reykjunt
í Lundarreykjadal. Guðmundur Pálmi, bróðir pabba,
átti að fara í uppfóstur til móðurafa síns, Þorleifs
Andréssonar, bónda í Villingadal í Haukdal og konu
hans Sesselju Einarsdóttur. Maðurinn sem átti að flytja
drenginn til Þorleifs afa síns rataði ekki. Hann fékk
því Finnboga Jónsson bónda á Svínhóli í Miðdölum
til þess að fylgja sér.
Þegar þeir komu að Villingadal var þeim boð-
ið inn, en þegar átti að afhenda drenginn í uppfóstur
brást Þorleifur ókvæða við og kvaðst ekkert vilja með
dótturson sinn hafa og vísaði honum á dyr.
Hvað Þorleifi gekk til með þessu framferði sínu
veit enginn og stutt varð um kveðjur. En það varð úr
að Finnbogi á Svínhóli tók drenginn í sína umsjá, átti
hann þó stóra tjölskyldu og hafði fyrir mörgum börn-
um að sjá. Þórleifu, yngstu systur Guðmundar Pálma,
var ráðstafað í uppfóstur til Ólafs Finnssonar, bónda
á Fellsenda í Miðdölum og konu hans Guðrúnar
Tómsdóttur, en þeir Ólafur og Finnbogi sem tók
Guðmund Pálma að sér voru bræður. Báðir voru þeir
bræður af Háafellsættinni.
Skráð í apríl 2011
http://www.ætt.is
22
aett@aett.is