Foreldrablaðið - 15.12.1937, Page 8

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Page 8
4 FORELDRABLAÐIÐ Nú fer 10 ára snáðinn að læra ýms- ar námsgreinar: landafræði, sögu, náttúrufræði, kristin fræði, reikning, réttritun o. s. frv. Fyrirfram er tiltek- ið, hvað hann skuli ,,læra“ í öllum þessum fræðum, hvað hann skuli festa sér í minni, til þess að geta ,,staðið sig vel á prófinu“ að lokum! Með vís- dómslega saminni stundaskrá er til tekið, hvaða klukkustundir og mínút- ur hverrar viku, allan veturinn, barnið skuli fást við hvert viðfangsefni fyrir sig. í dag kl. 10—11 á það að hafa landafræði, og fyrir þann tíma hefir því verið sett fyrir að læra um ríkin í Mið-Ameríku, nöfnin á þeim, stærð þeirra og íbúatölu, nöfn á höfuðborg- unum o. s. frv. í þessum tíma verður það auðvitað að svara spurningum við- víkjandi þessum löndum, benda á þau á kortinu, þylja upp úr minni sínu Foreldrar, hugsið um framtíð barna yðar ANDVAKA býður yður hjálp sína nöfnin og tölurnar', og hlýða á það, sem kennarinn kann að hafa að segja. Hitt kemur ekki málinu við, að upp- reisn og orustur geisa suður á Spáni, og að hugur barnsins er því fullur af spurningum um það land og þjóðina, sem þar úthellir blóði sínu; en það hef- ir alls engan áhuga á lýðveldum Mið- Ameríku. Það lærði um Spán í fyrra, þegar þar var ekkert sérstakt á seiði, og það er nóg. — Stundaskráin og kennslubókin gera ekkert ráð fyrir uppreisn á Spáni, né heldur tíma- bundnum áhugaefnum nemendanna. Drengsnáðinn, sem vér fylgjum í skólann, fær í höndur kennslubækur, eina í hverri námsgrein, og þær á hann að Iæra. Þessar bækur á hann ekki að lesa eins og eðlilegt er að lesa bók. Honum er sett fyrir lexía fyrir lexíu til að stagla og læra, smátl og smátt,

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.