Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 12
8
FORELDRABLAÐIÐ
að gegna þessu starfi hvernig sem
viðrar.
I öðru lagi liggja siðferðilegar á-
stæður t.il þess, að blaðasala barna
ætti að afnemast. Það er að leiða
börnin í freistni, að láta þau hafa und-
ir höndum peninga, sem þau eiga ekki,
en verða að standa skil á. Eins og
dæmi sýna, getur þetta leitt þau út í
smáhnupl. Er freistingin mikil fyrir
börnin að grípa til auranna, sem þau
hafa í vasanum, til þess að kaupa fyr-
ir þá sælgæti eða eitthvað annað, og
stela þannig úr sjálfs sín hendi. — Þá
hefir blaðasalan ekki ósjaldan verið
ýmsum börnum átylla til þess að fara
inn í búðir og hús, í þeim tilgangi að
ktela. Gera þau þá blaðasöluna sér til
erindis, eða hafa hana að yfirskyni,
og fá þannig á sölusnatti sínu mýmörg
tækifæri til hnupls, og leiðast oft bein-
línis í freistingu, sem þau ekki alltaf
standast. — Ennfremur á blaðasalan
drjúgan þátt í því, að venja börn á
göturangl, framkoma þeirra verður
frek og óhefluð af köllum, hrópum og
öðrum ráðum til þess að vekja á sér
athygli, svo að þeim verði eitthvað á-
gengt, og að þau verði ekki undir í
samkeppninni. Er það ekki sízt vegna
þessarar ástæðu, að leggja ætti bann
við að stúlkur yngri en 16 ára seldu
blöð á götum, enda er sá menningar-
bragur að færast á bæinn, að mjög
sjaldgæft er orðið, að smátelpur stundi
hér blaðasölu. — Loks kemur það
stundum fyrir í barnaskólunum, ap
börn biðja um frí til þess að selja blöð.
Ef börnin reyna að hafa blaðasöluna
að átyllu til þess að losna úr skólan-
um, þá er auðsætt, að þau hafa þarna
hentugt yfirskyn til þess að komast
Húsfreyjur!
Að sjálfsögðu notið þér tslenzkt smjör
eins mikið og þér getið, en ef þér á
annað borð kaupið smjörlíki, þá getur
ekki leikið vafi á því, ef þér hafið bor-
ið saman allar tegundir, að þér veljið
Blái borðinn er framleidchir í full-
komnustu smjörlíkisverksmiðju lands-
ins.-------------------------
í smjörlíkið er látið vítamín frá
Rannsóknastofu Háskólans, sem svar-
ar A. og D. vítamíninnilialdi sumar-
amjörs. Verksmiðjan notar ísl. smjör
fyrir 6—8 þús. krónur á mánuði.