Foreldrablaðið - 15.12.1937, Side 14

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Side 14
10 FORELDRABLAÐIÐ þess, sem selst í lausasölu, er seldur í bókabúðum, sem hafa þessi blöð á boðstólum, svo að götusalan er ekki nema um 37% af allra bæjarsölunni. Um þau eintök, sem seld eru á götum úti, er það að segja, að einn piltur sel- ur nærfellt helming þeirra. — Flugrit og smákver, sem börn hafa stundum á boðstólum, munu heldur ekki vera þeim nein teljandi tekjulind, enda ganga oft fullorðnir menn með þau í hús. Má því lauslega áætla, að tekj- ur barna af blaðasölu (að þessum eina pilti undanskildum) nemi varla meira en um kr. 18.00 á dag að jafnaði, eða um 30—36 aurum á dag á hvert barn, miðað við þau 50—60 börn, sem selja blöð að staðaldri. En auk þeirra selja miklu fleiri börn blöð í ígripum við og við. Loks má geta þess, að sum þeirra barna, sem selja blöð á götunum, — og án efa þau duglegustu, — eru kom- in yfir 14 ára aldur. Ég spurði og um álit afgreiðslu- manna um það, hvort blöðin myndu bíða fjárhagslegt tjön, ef aðeins 14 ára gömul börn og eldri fengju blaða- söluleyfi. Nálega allir tóku þessari uppástungu vel. Sumir töldu jafnvel þessa breytingu verða til bóta fyrir blöðin, því að minna af þeim skemmd- ist og ónýttist, ef eldri börn seldu þau. Hér má geta þess, að afgreiðslumenn telja það launa sig að borga einum duglegum unglingi, sem selur hér á götunum undir helming allra þeirra blaða, sem seljast í lausasölu, um 40% af söluverði blaðanna, en börn- um almennt borga þeir ekki nema um 30%. Ástæðurnar til þessa eru aðal- lega þær, að hjá pilti þessum eyði- leggjast miklu færri eintök en hjá hin- Mang’í k j ö t, svinaUjöt, alikálfakjöt, nautakjöt} clilka- kjöt, gœsir, rjúpur, kjúklinga, áskurð á brauð, smjör og ALLT, SEM YÐIJR vantar í j ólamatinn, fáið þér í mestu og beztu úrvali hjá Sláturfélagi Suðurlands.

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.