Foreldrablaðið - 15.12.1937, Page 16
12
FORELDRABLAÐIÐ
Sigurður Thorlacius:
Virðing barna
fyrir foreldrum.
Ýmsir kunnir sálarfræðingar telja,
að skapgerð mannsins mótist aðal-
lega fyrstu ár æfinnar, fyrir 7 ára
aldur. Kenningu þessa ber vissulega
ekki að taka allt of bókstaflega. En
hún undirstrikar a. m. k. þá óvé-
fengjanlegu staðreynd, að hversu
góðir sem skólar vorir eru, eða kunna
að verða, þá er uppeldishlutverk
heimilanna eftir sem áður mikils-
vert og vandasamt.
I greinarkorni þessu verður vikið
að einu mikilsverðasta uppeldis-
máli heimila. En engin tök eru á að
gera því rækileg skil í svo stuttu
máli, sem hér er kostur á að flytja.
Löngum hefir verið talið, og með
réttu, að virðing barnsins fyrir upp-
alendum hljóti að vera eitt frumskil-
yrði fyrir heillavænlegu uppeldi.
Þetta er augljóst mál, og mun eigi
orka tvímælis.
Oft heyrast raddir um það, að
virðingarleysi barna fyrir foreldrum
fari vaxandi, og sé jafnvel eitt af ein-
kennum samtíðarinnar. Vissulega
væri það ískyggilegt, ef rétt reyndist,
og þess vert, að leitast væri við að
finna orsakir og ráða bót á.
En málið er ekki eins einfalt og
sumir virðast ætla og verður ekki
leyst með ádeilum einum og siða-
prédikunum.
Virðing mun ofin úr tveim megin-
þáttum, aðdáun og ótta. Hún getur
Húsmæður!
Yður er að sjálfsögðu annt um heilsu yðar,
barna yðar og annara heimilismanna. Hafið
því hugfast heilræði læknisins og heilsufræð-
ingsins Dr. Johanne Cristensen, og annara
merkra manna, að nota sem mest af
i
mjólk, skyri, ostum og smjöri
Allt er þetta íslenzk framleiðsla