Foreldrablaðið - 15.12.1937, Síða 18
14
FORELDRABLAÐIE)
skilningur þeirra nálgast meira og
meira sjónarmið fullorðna fólksins
sjálfs. Einnig foreldrana sjálfa sjá
þau í nýju ljósi. Þeir flytjast af goða-
stallinum niður á jörðina til annara
mennskra manna,- Á þessu þreytinga-
skeiði, sem getur byrjað innan við 5
ára aldur og staðið yfir svo árum
skiptir, er senmlega rnestur vandinn
fyrir foreldrana að halda virðingu
barnanna óskertri.
Þegar allt er með felldu, þróast
hin einhliða, skilyrðislausa virðing
smábarnsins hægt og eðlilega yfir í
gagnkvæma virðingu, sem byggist á
mati og skilningi, en ber þó eftir
sem áður einhvern blæ hins háleita
og yfirnáttúrlega.
Hitt er einnig til, því miður, að
þegar barnið eldist og vex upp úr
hinni einhliða virðingu frumbernsk-
unnar, þá nær engin samsvarandi,
jákvæð tilfinning að þroskast í stað-
inn, en virðingarleysi, jafnvel fyrir-
iitning og hatur festa rætur.
Erfitt mun að gefa foreldrum ó-
brigðul ráð til að halda virðingu
barna sinna, og ætla ég mér eigi þá
dul. Mikið veltur á persónu foreldr-
isins og lundarfari barnanna.
Ýmsir virðast þeirrar skoðunar, að
strangleiki og jafnvel harka séu ó-
skeikular aðferðir til að halda virð-
ingu barnanna. Við þjóðfélagsháttu
liðinna tíma má vera að það hafi
heppnast, en nú á dögum eru þessar
aðferðir hinar hættulegustu. Venju-
lega mun árangurinn verða eitt af
tvennu: barnið verður þreklaus og
ósjálfstæð rola, eða það fyllist
þrjósku og mótþróa, sem stundum
endar með uppreisn gegn heimilinu
og þjóðfélaginu. Sumir þeirra drengja,
sem erfiðastir eru á heimilum, í skól-
um og í viðskiptum við lögregluna,
eru aldir upp við hörku og viðleitni
til kúgunar.
Til eru þeir foreldrar, sem sí og æ
jaga börn sín og ávíta, fyrir eitt í dag
og annað á morgun. Fólki, sem býr
við margskonar erfiðleika er vissu-
lega vorkunnarmál, þótt þjáningar
þess og harmar komi fram í skap-
brigðum og bitni á öllum í umhverf-
inu, börnunum eins og öðrum. Hitt
er jafn víst, að með hinu sífellda
nuddi og nöldri, ávítum og jagi er
þetta fólk að grafa virðingu sinni
hjá börnum eilífa gröf, og um leið
að skapa sjálfu sér nýjar raunir,
nýjar þjáningar.
Skortur á skilningi og samúð get-
ur haft örlagarík áhrif á virðingu
Foreldrar!
Vanti yður ramma utan um
myndir af börnum yðar og
vinum, þá látið innramma
þær á Laugaveg 10, því
þar fáið þér fallegast úrval
af rammalistum í öilum
stærðum og gerðum, einnig
sporöskjulagaða ramma eft-
ir pöntunum.
Fljót og liðleg afgreiðsla
Innrömmunarstofan
Laugaveg
Axel Cortes