Foreldrablaðið - 15.12.1937, Side 20

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Side 20
16 FÓRELDRABLAÐIÐ Arngrímur Kristjánsson: Um skólaferðir. Námsferðir skólabarna eru nú þeg- ar orðinn virkur þáttur í starfi barna- skólanna. Svo mjög, sem allir þættir skóla- starfsins þarfnast góðrar og gagn- kvæmrar samvinnu skóla og heimila, þá er þó þessum þætti ekki hvað sízt þörf á samúð og skilningi heimanað. Hér skal því þegar í upphafi gerð grein fyrir því, hvert markmiðið er með skólaferðum, og hversvegna kennarar vilja svo mjög gjarnan eiga þess kost, að takast nokkurra daga ferð á hend- ur með nemendum sínum, að náminu loknu eða áður en þeir yfirgefa skól- ann. Góðar myndir, teikningar, skýrar frásagnir og lýsingar, gefa ekki nægi- lega Ijósar hugmyndir, jafnvel þótt nemendur séu allir að vilja gerðir að tileinka sér námsefnið. Sérstaklega er hér átt við náttúrufræði-, landafræði- og sögunám, svo og lýsingar á atvinnu og þjóðháttum. Hér á það sannarlega við, að sjón og raun verður ávallt sögu ríkari. Börn vaÖa yfir læk. Athugum það, að nemandi veit í rauninni mjög lítið t. d. um fjall, þótt hann hafi fjallið jafnvel daglega fyrir augum. Hann getur gjarnan hafa lært inni í kennslustofu eða í námsbókinni, hvað f jallið er margir metrar yfir sjáv- arflötinn. En raunverulega þekkingu á eðli fjallsins hefir hann ekki náð að tileinka sér, fyrr en hann hefir prílað framan í giljadrögunum sjálfur og klifrað upp á fjallið og upp á hæsta tindinn. — Nemandinn þarf af sjá, finna og kynnast af eigin sjón Og raun eiginleikum fjalls.ins, og síðan, er eitt fjall er á þann hátt kannað, á hinn sami nemandi alla tíð hægt um vik að gera sér mjög skýra hugmynd um, ekki einasta þetta umrædda og kannaða fjall, heldur og yfirleitt um öll fjöll, jafnvel hvar í veröldinni sem þau annars eru. Nemandinn þarf að horfa á og virða fyrir sér eyjuna úti á flóanum, eiðið, nesið, fjörðinn og flóann. Fyr er ekki trygging fengin fyrir því, að hann hafi tileinkað sér nægilega ljóst eða yfirleitt skilji hugtökin: eyja, eiði, nes, fjörður, flói o. s. frv. Þannig mætti lengi halda áfram að sanna fræðslugildi skólaferðanna, og þótt hér hafi verið tekin fáein dæmi, aðeins af handa hófi, sjerstaklega landfræðilegs efnis, þá má á sama hátt finna hliðstæð dæmi úr öðrum náms- greinum, er sanna ljóslega yfirburði eigin athugana námsfer’ðafóiksins fram yfir óljósar hugmyndir, er nem- endur áður hafa gert sér um hlutina innan veggja kennslustofunnar. Hér hefir þá verið gerð tilraun 'til að benda á gildi skólaferðanna, sem nauðsynlegan þátt fræðslustarfsins sjálfs, og er sá þáttur hvað merkastur

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.