Foreldrablaðið - 15.12.1937, Side 21
FORELDRABLAÐIÐ
17
og mun eigi hvað sízt valda því, að
kennarar yfirleitt telja skólaferðir svo
sjálfsagðar og nauðsynlegar, að trygg-
ing verði að fást fyrir því í framtíð-
innni, að hverju barni gefist kostur á
, að taka þátt í nokkurra daga náms-
ferð, áður en skólagöngu þess lýkur.
En skólaferðir hafa meira en
fræðslugildi eitt saman sér til ágætis,
og skal nú nokkuð að því vikið.
Skólaferðir eða yfirleitt hópferða-
lög eru betur fallin en flest annað til
að vekja samúð, hjálpfýsi og félags-
kennd, en þetta allt eru dyggðir, sem
skólanum og skólalífinu yfirleitt er
ætlað að glæða og hlúa að hjá hverj-
um nemanda.
íSkólaferðin er einskonar vígsluat-
höfn þeirrar vináttu, er búið hefir um
‘ sig í brjóstum skólafélaganna, þá gefst
þeim oft tækifæri til að gera hvert
öðru greiða og sýna dálítið þrek og
manndómslund.
Þegar kennarinn hefir ferðast með
hinum ungu nemendum sínum, þreyzt
með þeim, keppt að sama marki og
þau, náð markinu og látið í ljósi gleði
sína með þeim, matazt með þeim,
hvílzt með þeim, samið með þeim á-
ætlanir um, hvernig næsta áfanga verði
náð o. s. frv., nýtur sín fyrst persónu-
leiki hvers einstaklings, og kennarinn
uppgötvar ýmsa beztu eiginleika, sem
kannske hafa legið duldir og hann
hafði aldrei fyr orðið var við.
Enn er eitt ótalið. Sk(ðaferðirnar
gefa oft fyrsta, og þá mjög dýrmætt
tækifæri til þess, að fá nemendurna til
að uppgötva sjálfstraust og þrótt.
Þess eru mörg dæmi, að 12—13 ára
telpur, sem eru aldar upp í kaupstað,
og hafa kannske aldrei fengið að dýfa
hendi sinni í kalt vatn, þora ekki fyrir
sitt litla líf að vaða yfir lækjarsprænu,
sem þó tekur þeim ekki meira en í
mjóalegg, og þótt þær sjái með eigin
augum, hversu djúpt eða öllu heldur
grunnt vatnið er. Að sigrast á slíkri
torfæru, getur valdið straumhvörfum
í lífi þessara óreyndu og óhörðnuðu
ungmenna.
Tvennt er það öðru fremur, sem
börnin og aðstandendur þurfa að gera
sér grein fyrir, varðandi þessi ferða-
lög. Annað er kostnaðarhlið málsins,
en hitt er um útbúnað, klæðnað og þess
háttar.
Hvortveggja þessi atriði skulu hér
athuguð nokkru nánar.
Yngri börnin fara aðeins í stutt
ferðalög, er eigi vara lengur en einn
dag. Kostnaður við slík ferðalög er
því sára lítill, eða oft innan við eina
krónu á barn.
Öðru máli er að gegna um ferðir
eldri barnanna. Þá getur kostnaðar-
Skólabörn í Almannagjá.