Foreldrablaðið - 15.12.1937, Side 25

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Side 25
FORELDRABLAÐIÐ 21 kölluðu „Plughúfur". Það má heita undan- tekning, ef greinilega merktir munir glatast í skólanum. Skólinn vill því benda forráðamönn- um barnanna á það, að merkja greinilega muni þeirra, þá glatast þeir síður og komast fyrr til skila er þeir finnast. Garðrækt og gróðrarhús fyrir skólann. Guðmundur Ásbjörnsson hóf máls á því í skólanefnd Austurbæjarskólans s. 1. vetur, að rétt mynd.i að láta börn í efstu bekkjum barnaskólanna, t. d. öll 12 ára börn, stunda matjurta- og blómarækt að sumrinu. Er hér um mjög merka tillögu að ræða, sem væntan- lega mun komast í framkvæmd áður en langt um líður. Athugandi væri einnig, hvort eigi væri ger- legt að koma bráðlega upp gróðurhúsi við Austurbæjarskólann, og nota til þess heita- vatnið. Myndi vinnast við það a. m. k. tvennt: Börnin gætu lært grasafræði af lifandi fyrir- myndum allt árið. Rækta mætti tómata handa skólabörnunum. En tómatar eru svo sem kunn- ugt er, mjög auðugir af C-bætiefnum, þeirri tegund bætiefna, sem íslenzk börn vantar einna heizt, einkum að vetrinum. Miðbæjarskólinn 1937—’38. Nemendur skólans eru í ár 1610. Fastir kennarar eru 37. Stundakennarar eru 10 og forfallakennar- ar 7. Kennari málhaltra barna er einn við alla skólana. Þetta skólaár hafa börnin ferðast ipeira en venjulega. — Fóru kennarar með elztu börnin bæði austur og vestur um sýslur. Öll börhin, sem skólann sóttu í september, fengu að fara lengri og styttri berjaferðir. Vor og haust var kennsla úti við, þegar veð- ur leyfði. Mikill áhugi er nú hjá elztu deildunum, að safna fé í ferðasjóði, til þess að hægt verði að ferðast á vori komanda. Tvær kennslukonur við skólann leiðbeindu tveim deildum við skólann í blómrækt og garð- rækt. Fór þessi kennsla fram í skólagarði barnanna. Næst er gert ráð fyrir, að Reykja- víkur-börnin fái land til ræktunar. Barnalesstofa. Undanfarin ár hefir Lestrarfélag kvenna haldið opinni lesstofu fyrir börn. Hefir jafn- an verið þar margt barna við lestur. Einkum hafa börn af svæði Miðbæjarskólans leitað þangað, því í skólanum er engin lesstofa, og ekkert nemendabókasafn. Hvorttveggja þykir nú ómissandi í öllum barnaskólum menning- arþjóða. Nú hefir Lestrarfélag kvenna orðið að hætta lesstofustarfseminni, vegna of lítils styrktarfjár, og býður nú bækur og innan- stokksmuni til sölu fyrir 1000 krónur. Þegar þess er gætt, hve mikils börnin í Miðbæjar- skólanum missa, við lokun lesstofunnar, og hve skólann hinsvegar vantar marga nauðsyn- lega hluti, virðist full ástæða til að gera skól- anum kleift að eignast bækurnar, sem stofn að nemendabókasafni. í Austurbæjarskólan- um starfrækir Alþýðubókasafnið barnales- stofu, en Miðbæjarskólinn fer nú alls á mis í þessum efnum. Laugarnesskólinn. Húsrúm skólans. I vetur stunda nám í Laugarnesskóla tæp 350 börn. En þar sem húsrúm skólans hefir ekkert aukizt, þá er nú svo þröngt um börnin, að við slíkt er ekki unandi lengur. Enda er nú verið að teikna viðbót við skólann, sem vonandi verður byggð fyrir byrjun næsta skólaárs. BóknámiS. Á síðasta skólaári varð, að dómi skólastjóra og kennara skólans, ekki viðun- andi árangur af námi barnanna í íslenzku og skrift, og reikningi í sumum. bekkjum. Nú hefir íslenzkunámið verið aukið að mun í öllum bekkjum, og skriftarkennslan hefir verið tekin til sérstakrar meðferðar. Hefir skólinn fjölritað fyrirmyndir að skrift, sem öll börn skólans æfa sig að skrifa eftir tvisv- ar í viku hverri. Verður birt sýnishorn af for- skriftinni í blaði, sem börnin munu gefa út í skólanum fyrir jólin. Er hérmeð skorað á alla foreldra barna í Laugarnesskólanum að hvetja börnin til að æfa sig að skrifa heima eftir föngum. Öll börn skólans verða prófuð í lestri í desember og siðan með jöfnu millibili út skólaárið, og verður svo þeim foreldrum barnanna (sérstaklega í neðri bekkjum) gert aðvart, ef óskað er eftir sérstakri aðstoð frá

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.