Foreldrablaðið - 15.12.1937, Side 28
24
FORELDRABLAÐIÐ
Ekkert annað en hæfilelkinn til að
nema, skilningsgáfa og andleg atorka
réttlætir' flokkun barnanna á þessu
stigi.
Nú mun mér óhætt að fullyrða, að
ekki einu sinni kennararnir við
Menntaskólann, sem prófið fram-
kvæma, haldi því fram, að það sé ó-
yggjandi mælikvarði á þessa hluti. —
Prófið mælir aðeins þekkingu barn-
anna í einstökum námsgreinum, en
leggur engan dóm á þá áreynslu, sem
liggur að baki þekkingarinnar hjá
hverju einstöku barni. Jafnvel skiln-
ingsgáfan er mjög lauslega prófuð, að
ég ekki tali um hugkvæmni eða frum-
leik við námið. Enda munu kennarar
skólans ekki mótmæla því, að úrskurð-
ur prófsins stenzt ,ekki ávallt reynsl-
unnar dóm. En fram að þessu hafa
menn lítt kunnað að beita öðrum próf-
aðferðum en þekkingarprófinu, og nið-
urstaðan hefir orðið sú, að ár frá ári
herðist kapphlaupið milli prófhörk-
unnar annarsvegar og harðneskjulegs
ítroðnings hinsvegar, af hendi þeirra
kennara, sem gerzt hafa sérfræðingar
í því að búa börnin undir prófið.
Það er þetta kapphlaup, sem ég ætl-
aði sérstaklega að gera að umtalsefni.
— Mér blandast ekki hugur um, að
fræðaítroðningur sá. sem tíðkast við
undirbúning undir inntökupróf í
Menntaskólann, felur í sér alvarlega
hættu fyrir þreklítil og veikbyggð
börn. Hitt liggur ekki síður í augum
uppi, að hann skapar félagslegt mis-
rétti, og hann villir menntastofnuninni
sýn við ákvörðun prófsúrslitanna. Fé-
lagslega misréttið skapast við það, að
ítroðningurinn kostar peninga. — Því
meira fé, sem hægt er að fórna til
Þrjú ár
LÍFTRYGGINGARDEILD
Sjóvátryggingarfélags íslands h.f.
Aðalskrifstofa
Sími 1700.
Tryggingarskrifstofa Carl D. Tulinius & Co.
Sími 1730.
eru síðan, að
Sjóvátryggingarf é-
lag Islands h.f. hóf
líftryggingarstarf-
semi sína. Þegar á
öðru ári var svo
komið, að félagið
tryggði meira en
önnur félög hér á
landi og hefir það
haldist.