Foreldrablaðið - 15.12.1937, Side 34
30
FORELDRABLAÐIÐ
Sigurður Magnússon:
Svefntími
skólabarna.
Danskur yfirlæknir dr. Valdemar
Poulsen hefir skrifað ágæta bók um
uppeldi barna. I bókinni er m. a. kafli
um svefntíma skólabarna. I þessum
kafla ræðir dr. Poulsen um nauðsyn
þess, að skólabörn hafi nægan svefn.
Það að börn þurfi að sofa nóg er að
vísu óumdeilt, en vegna þess að ég
hygg að margir séu í vafa um hvað átt
er við með orðunum ,,nægur svefn“,
þykir mér rétt að skýra lesendum For-
eldrablaðsins frá skoðun þessa læknis
á því. Ég skal taka fram, að ég er ekki
í neinum vafa um, að skoðun hans í
því efni, er skoðun heilsufræðinga
yfirleitt.
Hann gerir ráð fyrir, að börnin fari
á fætur klukkan 7 (eins og mun vera
algengt um skólabörn hér í Reykja-
vík). Hann telur svefnþörf þeirra und-
antekningarlítið fullnægt, ef þau fara
að hátta, sem hér segir:
Börn frá 7— 9 ára klukkan 7)4
Börn frá 10—11 ára klukkan 8
Börn frá 12—13 ára klukkan 8)4
Börn frá 14 ára klukkan 9
Börn frá 15—17 ára klukkan 9)4
Ég er ekki í neinum vafa um, að
þessi litla tafla á erindi til margra hér
í bæ. Hér í blaðinu er ekki rúm til
þess að færa að þeirri fullyrðingu löng
rök, en ég vil þó leyía mér að benda
á eftirfarandi staðreyndir: Reynzla
kennara barnaskólanna er sú, að ein
af aðalástæðunum til hinna óleyfilegu
fjarvista — „skrópa“ — barna er sú,
að þau sofa lengur á morgnana en