Foreldrablaðið - 15.12.1937, Page 36

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Page 36
32 FORELDRABLAÐIÐ Jón Sigurðsson: Skyldur heimil- anna við börnin. Rannsóknir hinna nýju uppeldisvísincla hafa leitt í ljós, að möguleikar uppeld'iiins fyrir heilbrigðum; líkamlegum og andleg- um |)roska barnsins, eru margfalt meir'i en vitrustu menn þjóðanna hafa á umliðnum öldum þorað að vona. En einmitt þessi boðskapur krefst auk- innar ábyrgðartilfinningar uppalendanna, og meiri kostgæfni um allt uppeldi barna og unglinga. Nú er það samhljóða álit merkustu barnasálarfræðinga, að fyrstu 4—6 árin í æfi barnsins sé þýðingarmesta þroskaskeið æfi þess. En uppeldi þessara fyrstu ára hvíl'ir venjulega eingöngu á foreldrunum Foreldrar! Það er uísindalega sannað, að Freyju súkkulaði er mjög bœtiefnaríkt. — I skammdeginu ættuð þér þess vegna að gefa börnum yðar Freyju súkkulaði daglega, svo að þau fái notið hinna dásamlegu áhrifa þess. og heimilinu, og veröur það því eltki rætt hér frekar að þessu sirníi. En þegar barnið kemur í skólami, tekur kennar'inn og skól- inn á sig nokkurn, og oft mikinn, hluta af uppeldisskyldunni. Það mun heldur ekki óalgengt, að for- eidrar lít'i svo á, að þegar barnið fer að ganga í skólann, sé miklum vanda létt af heimilinu og hinum eiginlegu uppalend- um um öll fræöileg atriði og um andlegt uppeldi barnsins. En þessu fer fjarri. Þegar barnið hefur skólagöngu sína, þarfnast það meira en nokkuru sinni fyrr uppörvuhar, stuðnings og andlegrar að- stoðar heimilisins. Þá kamur það til kenn- arans, sem á að verða því nýr uppalandi, ásamt heim'ili barnsins og foreldrum þess. Þá ríður á, að foreldrarnir leitist við að temja barninu vingjarnlegt og farsælt við- horf til skólans og kennarans. Þá þurfa foreldrarnir einnig að gera ýtrustu tilraun

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.