Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 37

Foreldrablaðið - 15.12.1937, Blaðsíða 37
FORELDRABLAÐIÐ 38 til, að kjrnna sér starfiö í skólanum, og að' samlaga heimilið skólanum, að því leyd sem nauðsyn krefur, svo að barnið nái blessunarríkum árangri í skólanum. En séu foreldrar’óánægðir með stefnu skólans eða starf kennarans, þá þurfa þeir að bera kvörtun sína fram við kennarann eða skólastjóra, og leita þannig eftir vænlegri árangri fyrir barnið. En við barn sitt ætti ekkert foreldri að ræða um þessi efni, því að það skapar aðe'ins tortryggni barnsins. Og eigi barnið að ná ákjósaniegum árangri af dvöl sinni í skólanum, þá má það ekki bera vantraust né kala til kennara síns né til skólans. Annað aðalhlutverk heimilisins fyrir barnið, sem er að hefja skólagöngu sína, er að hjálpa barninu til að notfæra sér til- andlegs vaxtar og þroska þau áhrif, sem það verður fyrir í skólanum, í kennslunni og meðal skólafélaga sinna, og annarsveg- ar fræðsluna, sem barnið fær í skóianum. í skólanum og við námið vakna "hjá barninu ótal spurningar og úrlausnarefni, sein heimilin þurfa að hjálpa því til að svara og leysa. Ekki þó svo að skilja, að heimilið e'igi að taka námserfiðið af barn- inu, skrifa fyrir það stílana, reilma fyrir það dæm'in o.s.frv. Því að svo aðeins þrosk- ast barnið á náminu, að það leggi fram vit sitt og orku við námið. Eg hefi hér sýnt fram á það, að skyldur heimilisins fyrir andlegt uppeldi barnsins, aukast þá fyrst að mun, þegar barnð fer að ganga í skólann. Eg vil svo að lokum minnast á nokkur at- riði af mörgum, sem foreldrar þurfa að gera sér að skyldu fyrir skólabarnið sitt. Þeir þurfa, að temja barninu vingjarn- legt viðhorf til skólans. Fylgjast með líðan barnsins í skólanum, andlegri og líkamlegri. Gera sér að reglu að láta barnið finua, Alþýðublaðið er bezta fréttablað lands- ins. Flytur m. a. greinar um TJPPELDISMÁL og er því ómissandi öllum foreldrum. Sunnudagsblað Alþýðublaðsins ER BÆÐI FRÓÐLEGT OG SKEMMTILEGT. Alþýðublaðið Bezta blaðið Avalt fil nýr og frosinn fiskur. Hafliði Baldvinsson Sími 1456

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.