Foreldrablaðið - 15.12.1937, Qupperneq 41
FORELDRABLAÐIÐ
37
stafar af núverandi ástandi á þessu
sviði og hve nauðsynlegt það er, að
án tafar verði komið á sem flestum
leikvöllum. Og þetta er vel fram-
kvæmanlegt, ef vilji fjöldans og
kraftar eru samstilltir.
Hér er áreiðanlega mál, sem for-
eldrar, kennarar og aðrir unnendur
barnanna ættu að taka höndum sam-
an um og fylgja með þeim þunga,
sem ekki verður undan flúið.
En þetta er ekki eina málið, sem
foreldrum og kennurum ber skylda
til að hafa samvinnu um — þau eru
mörg og þýðingarmikil. Ég vil að
þessu sinni drepa á annað mál, sem
nauðsynlegt er að taka ti) athugun-
ar. Ég hefi ekki ósjaldan orðið þess
var, að börnin eru svo störfum hlaðin
utan skólans — og skólanum óvið-
komandi — að þau hafa ekki tíma
til að búa sig undir hið daglega
nám. Það verður þó að teljast eitt -af
aðalskilyrðum þess, að góður á-
rangur verði af skólanáminu, að börn-
in komi vel undirbúin í hverja
kennslustund. Hafi lesið eða numið
í sínum námsgreinum, það sem kenn-
arinn hefir ætlað þeim, séu útsofin og
óþreytt.
Það ber alltof mikið á því, að börn-
in eyði tíma sínum og orku með þátt-
töku í hinum og þessum félögum,
sem ekki eru í neinu sambandi við
skólann eða störf þeirra þar.
Ég þarf ekki að svo stöddu, að
nefna nein sérstök félög í þesru sam-
bandi, það yrði kannske misskilið, og
ég vil taka það fram, að það ber ekki
að skilja orð mín svo, að hin ýmsu fé-
lög í bænum, sem telja börn sem
meðlimi sína, geti ekki verið ágæt
og sjálfsögð, út af fyrir sig, en þau
IOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO fc
Nýja bókmenntafélagið
Mál og menning
býður yður þau kostakjör,
sem ekki hafa þekkzt áður í
bókakaupum hér á landi.
Fyrir aðeins 10 krónu ár
giald fáið þér: Þetta ár tvær
bækur, Vatnajökul og Rauða
penna. Næsta ár fjórar bæk-
ur (miðað við 2000 félags-
menn). Þriðja árið sex bæk-
ur (miðað við 3000 félags-
menn).
VATNAJÖKULL
er eftir danska náttúrufræð-
inginn Niels Nielsen, býdd af
Pálma Hannessyni, rektor. —
Bókin er lýsing á gosi í
Vatnajökli, skemmtilega
skrifuð, prýdd yfir 70 glæsi-
legum myndum.
RAUÐIR PENNAR
er safn af. sögum, Ijóðum og
ritgerðum eftir innlerda og
erlenda rithöfunda, 240 bls.
að stærð í Skírnisbroti. Fyrri
bindi þessa rits hafa vakið
mikla athygli.
I Mál op menninsr eru þegar
komnir yfir 1600 félagsmenn.
Gerist félagar í Mál og menn-
$ ing og fáið bækur þessa árs.
0 Afgreiðsla er í Br'kaverzlun
^ Heimskringlu, Laugaveg 38, sími
V 2184.
%
OOOOOOOOOOOOOOOOOOKt