Foreldrablaðið - 01.01.1969, Side 26

Foreldrablaðið - 01.01.1969, Side 26
eldinn læsa sig í brúðurúmfötin. Henni sýndist Lísa horfa á sig eins og hún vildi segja: „Nú brenn ég, og það er þér að kenna.“ Nú náðu logarnir í gulu hárlokk- ana hennar Lísu. Þetta var hræðilegt. Rósa áttaði sig. Hún hljóp til dyra, barði með báðum höndum á hurðina og kallaði: „Opnið þið, brúðan mín er að brenna. Vesalings Lísa mín er að brenna!“ Við þennan hávaða vakn- aði litli bróðir og fór að hágráta. Það var eins og systkinin væru að gráta í kapp. Þetta var hræðileg stund. Til allrar hamingju heyrði ná- grannakonan grát barnanna og fann um leið brunalykt. Hún kallaði í smið- inn, sem bjó í sama húsi. Hann kom undir eins með verkfærin sín og gat opnað dyrnar. Og þeim tókst í sam- einingu að slökkva eldinn. Rétt á eftir kom mamma. Henni brá. Hver ósköp höfðu komið fyrir? En hún skammaði ekki Rósu litlu, því að henni fannst þetta vera sjálfri sér að kenna, hún hefði ekki átt að skilja hana eina eftir hjá litla bróð- ur. „Maður má aldrei fara frá óvita börnum,“ sagði hún. „Nei, það ætti enginn að gera,“ sagði nágrannakon- an. „1 þetta skipti var það aðeins brúðan, sem brann, en litlu munaði, að bæði Rósa og litli bróðir brynnu líka.“ Lausleg pýðing úr dönslcu. MENGI Sjö ára drengur er spurður: Hvað er mengi? Svar: Mamma og pabbi og þrír blóðmörskeppir, það er mengi. REYKINGAR Hvað kostar einn vindlingapakki nú? Þú, sem ert rétt að byrja að reykja, viltu ekki staldra við og hugsa? Þetta er kannski aðeins ein sígaretta annan hvern dag eða jafnvel enn minna. Þú ætlar þér ef til vill alls ekki að verða reykingamaður. Þannig hafa margir hugsað á undan þér en endirinn oft orðið sá, að þeir urðu miklir reykingamenn, áður en þeir eiginlega vissu af. Það þykir víst ekki neitt mikið að reykja einn pakka á dag, en hvað kostar það yfir árið? Hvað verður þú búinn að greiða stóra fjárhæð eftir 10 ár? — Eftir 50 ár? Mundir þú ekki hugsa þig um, áður en þú fleygðir þeirri fjárhæð í eld? Og þó — eru menn ekki að brenna peninga, þegar þeir reykja? Og svo þykir sannað, að heilsa þín sé í hættu, ef þú reykir stöðugt. Það skiptir kannski ekki máli. En viltu samt ekki hugsa örlítið betur? Þetta kann að varða þig meira, en þú hefur enn þá gert þér grein fyrir. Heill þér, óspillta æska. Ég ann þínum góðleik og hreysti. Ég gleðst yfir hverri göfugri sál, til giftu ég henni treysti. ÓHEPPILEG MÁLVILLA I SJÓNVARPI -----Það er aðeins verið að koma í veg fyrir að óhreindindi berist ekki að sárinu. 24 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.