Foreldrablaðið - 01.01.1969, Side 30
er algengt. Það kynni að styrkja kjöl-
festu atvinnuveganna.
En allir góðir foreldrar óska þess
auðvitað fyrst og fremst, að börnin
þeirra verði farsæl í iífi og starfi. Til
þess að svo megi verða, er efnalegt
öryggi mikils virði í augum margra,
og verður því að hafa það í huga, þeg-
ar lífsstarf er ákveðið. Hitt mun þó
ekki minna vert, að menn öðlist ævi-
starf, sem þeir hafa hæfileika til —
er þeim að skapi. Það var oft nefnt
að komast á rétta hillu í lífinu, og
var talið mikils virði, og mun svo
enn. Að vísu eru hæfileikar manna
sjaldan svo einhliða, að val af þeim
sökum sé mjög þröngt, en þó mun
mjög algengt, að áhugi þeirra beinist
að einu fremur en öðru, og er þá
vissulega æskilegt, að þangað sé
stefnt og því marki náð. En atvinnu-
lífið er svo breytilegt, að margir
verða að skipta um starf á ævinni og
stundum oftar en einu sinni.
— Hver viltu hafa lokaorð þín?
— Ég vil enn leggja. áherzlu á sam-
vinnu fjölskyldunnar um framtíð
unglinganna — að málin séu rædd á
þeim vettvangi og íhuguð til þess að
reyna með því að forðast óheillaspor.
Þar næst að leitað sé til annarra
þeirra, sem hafa þekkingu á þessum
efnum, svo sem sálfræðinga, félags-
fræðinga, kennara og svo náttúrlega
þeirrar stofnunar, sem sérstaklega
hefur það starf með höndum að veita
leiðbeiningar og aðstoð i þessum efn-
um. Samfélagið allt er svo flókið, að
unglingar þarfnast nauðsynlega
handleiðslu og ýmiss konar aðstoðar
miklu fremur en áður var. En mikil-
vægast af öllu er þó e. t. v. það, að
ungmennin skilji tilganginn með
skólanáminu og skynji, að skólanám-
ið er undirbúningurinn undir lífs-
starfið, og með því að rækja það vel
er verið að leggja þá undirstöðu, sem
síðar verður byggt á.
Hvað vil ég verða? Um margar leiðir er að velja. En ég þarf að hugsa mig vel um.
28 FORELDRABLAÐIÐ