Foreldrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 31

Foreldrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 31
Spjallað við móður — Þú átt börn í skóla? — Ég á einn dreng í barnaskóla. Hann er 11 ára og er í 5. bekk. — Er hann fyrsta barn þitt í skóla ? — Já, enn sem komið er. — Mig langar að spyrja, hvort hugmyndir þínar og vonir um skól- ann hafi rætzt svona í aðalatriðum. — Við því get ég sagt bæði já og nei. Þar hafa skipzt á skin og skúrir eins og eðlilegt má teljast. Allt gekk ljómandi vel fyrsta veturinn og jafnvel tvo fyrstu. Drengurinn var mjög ánægður og ég raunar líka. Hann er það reyndar alltaf, en ég síður nú í seinni tíð. — Þetta kann að vera eðlilegt, en gaman væri þó að fá nánari skýring- ar á því, að móðir og sonur eru ekki á sama máli um þetta. — Já, ég skal reyna að skýra það frá mínu sjónarmiði, en það verður kannski nokkuð langt mál. — Það gerir ekkert til. ■— Ég vil þá fyrst geta þess, að mér virðist kennarinn balda góðum aga. Það er kannski ekki of sterkt að orði kveðið, þótt sagt sé, að hann hafi strangan aga. Slíkt verkar sennilega misjafnt á börn, og mig grunar, að zvo sé þarna. En minn drengur er þannig gerður, að hann þolir agann vel og nýtur hans með vissum hætti. Hins vegar þekki ég móður annars drengs í bekknum, sem hefur aðra sögu að segja. — Hefur þú ákveðnar skoðanir um skólaaga ? Ég spyr vegna þess, að mér er kunnugt um mjög skiptar skoðanir, bæði kennara og foreldra, í þessum efnum. — Sennilega er sá agi beztur, sem nemendurnir verða lítið varir við, en kemur þó að haldi. Strangur agi á ekki jafnvel við alla, en agaleysi er að mínum dómi það versta. — Þú ert sem sagt ánægð með agann, en hvað er það þá í fari kenn- arans eða kennslumáta hans, sem þú gagnrýnir ? — Það er nú fleira en eitt, en þó má ef til vill rekja það allt til eins og hins sama í fari hans. Mér virðist margt benda til þess, að hann sé lat- ur. Það er kannski Ijótt að segja þetta um kennara, þótt sjálfsagt þyki að tala um leti hjá börnum. En ég held, að letin komi fram hjá fólki á hvaða aldurstigi sem er, ef hún er því eðlislæg. En til þess að þetta sé ekki alveg staðlausir stafir, vil ég nefna dæmi því til skýringar. Það er þá fyrst, að hann tekur aldrei nein verk- efni barnanna heim með sér, ekki reikningsbækur, stafsetningu, skrift eða vinnublöð, sem sagt ekki neitt. — Já, það hef ég nú heyrt um FORELDRABLAÐIÐ 29

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.