Vikan - 21.01.1982, Page 2
Margt smátt
Viðburðir fiðins árs:
Þetta var ástarsamband aldarinnar. Nei,
ekki þetta á milli Kalla prins og Díönu,
kjáninn þinn. Við erum að tala um
ástríðuhita fjölmiöla vegna sögunnar
um Karl og Díönu. Harðsoðnir ritstjórar
hvar sem var sáu okkur fyrir daglegum
skammti af undanfara hins konunglega
brúðkaups, sem aðeins þeir sem
virkilega eru gagnteknir höfðu áhuga á.
„Díana kaupirtyggjó.” „Karl prins jafn-
vígur á báðar hendur með svipu.”
„Fimm brúðarkjólar til vara (ef vera
kynni að einn rifnaði).” — Þannig voru
fyrirsagnirnar sem blöstu við okkur I allt
fyrrasumar. Blöðin voru vitfirringu
næst. O, jæja, það var nú varla á öðru
von. Diana er nú einu sinni svo svip-
brigðarik. Og eyru prinsins eru ekki
sem verst heldur.
Auðvitað kom fyrir að eitthvað birtist
á forsíðum til að spilla gleðinni, eins og
fréttirnar af uppþotum atvinnuleysingja
í Liverpool og London, með hamagangi
og látum. Og til hvers svo? Drottningin
sjálf reyndi að hjálpa þeim úr
ógöngunum með því að halda marg-
milljarða brúðkaup. „Hjálpið þeim að
leifum gnægtanna,” hefur alltaf verið
svar kóngafólksins.
Og það var étið. Ekki færri en 600
milljónir mannaátu með augunum brúð-
hjónin, gleiðbrosandi á skjánum. Svo
var þarna einvalalið annarra þjóð-
höfðingja, til að æfa sig í eigin frama. Á
hverju eiga fjölmiðlar nú að nærast?
Hljótt hefur verið um óléttu Díönu til
þessa. En kannski er stutt i að barm-
merki verði framleidd með áletrunum
eins og „Díana farin að prjóna” eða
„Prinsinn býður hestum hennar
hátignar vindla." Við getum varla beðið.
Notkun orðsins snemmbær í
heilabrotum (l-X-2) Vikunnar í 53.
tölublaði 1981 hlaut ekki hljómgrunn
hjá Reimari Karlssyni frá Öxl í Breiða-
víkurhreppi á Snæfellsnesi. Reimar
skrifar:
„Hvað merkir orðið snemmbær í 53.
tölublaði 1981? Snemmbær er sagt um
kýr sem bera I sept.-des., aðrar eru
síðbærur, hef aldrei séð eða heyrt að
kindur væru snemmbærar, þær sem
bera í apríl eða mars eru taldar fyrir-
málskindur.”
Við flettum upp í orðabók
Menningarsjóðs sem út kom árið 1963
og þar er orðið snemmbær notað jafnt
um ær sem kýr. Sama er að segja um
orðabók Sigfúsar Blöndal sem út
kom á árunum 1920-24.
Ennfremur höfðum við tal af
Guðrúnu Kvaran hjá Orðabók Há-
skólans. Hún sagði að hjá þeim væru
einungis til dæmi um notkun orðsins
snemmbær um kýr. Eina dæmið
viðkomandi ám barst úr Árnessýslu og
er því mótmælt að snemmbær sé þar um
slóðir notaðum ær.
Við verðum því að svara Reimari á
þann veg að heimilt sé að nota þetta orð
um ær, en aðjafnframt virðist það sums
staðar i sveitum landsins einungis notað
um kýr. Nú þætti okkur gaman að
fregna hvar annars staðar orðið
snemmbær er notað um ær og hvar ekki!
Sendiðokkur linu:
VIKAN,
pósthólf 533,
121 Reykjavík.
Willy Breinholst
LEIG JANDINN Í KÚLUNNI
Dæ, Dæ,
mæ darlíng!
*
„Snemmbær'
Hæ - ég get spriklað!
Ef ég held áfram að vaxa eins og ég
vex núna endar með því að ég verð
að fara héðan. Það eru ekki margar
vikur síðan höfuðið á mér var ekki
stærra en þetta: o — og handleggir
og fætur ckki stærri en þctta: Svo
varð höfuðið á mér svona stórt: O og
handlcggir og fætur svona: 0. Nú
hcf ég búið hér á þriðja mánuð og
hcld áfram að vaxa og vaxa og vaxa.
Var ég búinn að segja að ég er búinn
að fá mín cigin lungu og nasir til að
anda mcð? Og fingur. Ég get
spriklað bæði með höndum og
fótum. Ég hcld ég cigi eftir að hafa
mikið gaman af því. Stundum hcf ég
sparkað dálítið í vcggina hérna hjá
mér, svona til að gefa mömmu
mcrki, cn hof ckki almennilega
komist í samband cnnþá. Vitiði hvað
ég gct meira?
Ég get hreyft tærnar. Getið þið
það líka?
Kannski bara
betra að hafa
verkinn áfram
Aumingja fólkið, sem fór að reyna3'
leika þessa ágætu æfingu eftir þ«ssal
lipurtá á teikningunni. Hvernig setli F
sé í mjóhryggnum núna?
DV 8.1. ’82
um?
fy(i
Flestar konur er viðkvæmar
þreytu í neðsta hluta baksins eða n1 (
hryggnum. Á meðfylgjandi my11®,
einföld æfing til að lina þá verki ^
oft fylgja og hjálpa vöðvunum 11
slaka á.
inn
Leggist á gólfið með teppi eða Þ11 .
dýnu undir. Samanvafið handkl® ^
sett undir hálsinn, til stuðningS’^,,
kálfarnir látnir hvíla á púða eð*
mjúku, sem sett er á stólsetuna.
bakinu beinu, lyftið mjöðmunum 0 ..
lítið og beygið hnén. Slakið á i tíu
útur eða þar til þið ftnnið að Þr0
líður úr.
$ # # * ^
jUj
Jói gerðist útflytjandi til Ameríku ^
leið frá Aberdeen. Hann sótti um slÁ
sem lögregluþjónn og fór í hæfms|': .
Þar var hann spurður hvað hann m)1^
gera ef hann þyrfti að ^e
mannþröng. jjj
„Það sama og heima,” svaraði
„láta samskotabaukinn ganga.” t
2 Vikan 3. tbl,