Árbók VFÍ - 01.06.1993, Page 82
1-4
Lög og reglur VFÍ
1 Lög Verkfræðingafélags íslands
(Samþykkt á auka-aðalfundi 28.nóv 1974 með áorðnum breytingum til og með aðalfundar 25. mars 1992)
Nafn
Lgr.
Félagið heitir Verkfræðingafélag íslands, skammstafað VFÍ, og hefur aðsetur í Reykjavík.
Um málefni Verkfræðingafélags Islands fjalla aðalstjórn og framkvæmdastjórn, sbr. 13. og
14.grein, auk félagsfunda.
Markmið félagsins
2. gr.
Markmið félagsins er:
að efla verkfræðilega og vísindalega þekkingu félagsmanna,
að auka gagnkvæm kynni þeirra,
að stuðla að tækniþróun í landinu,
að auka álit verkfræðilegrar og vísindalegrar menntunar,
að auka þekkingu og skilning á starfi verkfræðinga,
að gæta hagsmuna stéttarinnar í hvívetna.
3. gr.
Félagið vinnur að markmiðum sínum meðal annars með því:
að halda fundi um áhugamál félagsmanna,
að halda uppi fræðslustarfsemi, svo sem námskeiðum og erindaflutningi,
að efna til skoðunarferða,
að gefa út Tímarit VFÍ og stunda aðra útgáfustarfsemi,
að stuðla að starfsemi sérgreinadeilda, sem fjalla um málefni hinna ýmsu verkfræðigreina,
að stuðla að starfsemi hagsmunafélaga, er gæta hagsmuna stéttarinnar,
að hafa tengsl við samtök verkfræðinga erlendis,
að hafa tengsl við samtök háskólamenntaðra manna hérlendis og erlendis.
Félagar
4. gr.
Almennir félagar geta orðið:
1. Þeir íslendingar, er lokið hafa viðurkenndu fullnaðarprófi í verkfræði, svo og þeir íslend-
ingar, sem lokið hafa fullnaðarprófi við viðurkenndan háskóla í þeim vísindagreinum, sem
verkfræðin byggist á (eðlisfræði, efnafræði, stærðfræði o.fl.). Einnig þeir erlendir menn, sem
lokið hafa sams konar prófi, ef umsókn þeirra hlýtur samþykki aðalsljórnar samkv. 8.gr.
2. Aðrir fræðimenn í raunvísindum eða framkvæmdamenn á tæknisviði, sem aðalstjórn fél-
agsins býður að gerast félagar, þegar ástæður mæla með.