Árbók VFÍ - 01.06.1993, Page 85
Lög og reglur 83
og verður sá meðstjórnandi, er flest alkvæði hlýtur, og varameðstjórnandi sá, er næstflest
atkvæði hlýtur.
Framkvæindastjórn
16. gr.
Framkvæmdastjórn skipa formaður, varaformaður og þeir tveir meðstjórnendur, sem kosnir
eru beinni kosningu á aðalfundi.
Framkvæmdastjórn setur sér starfsreglur, sem háðar eru samþykki aðalstjórnar. Fram-
kvæmdastjórn ræður framkvæmdastjóra, sem ræður annað starfsfólk.
Framkvæmdastjórn skal leggja fram á aðalfundi skýrslu um starfsemi félagsins fyrir liðið
starfsár, endurskoðaða reikninga, ennfremur starfsáætlun næsta starfsárs og fjárhagsáætlun.
Framkvæmdastjórn getur veitt prókúruumboð fyrir félagið.
Aðalstjórn og framkvæmdastjórn skulu halda gerðarbækur um fundi sína og ákvarðanir.
Deildir og hagsmunafélög
17. gr.
Innan vébanda VFI geta starfað sérgreinadeildir, landshlutadeildir, klúbbdeildir og hags-
munafélög.
Sérgreinadeildir Ijalla um málefni hinna ýmsu verkfræðigreina.
Landshlutadeildir eru samtök félagsmanna, búsettra í hinum ýmsu landshlutum (héruðum).
Klúbbdeildir starfa að ýmsum áhugamálum félagsmanna.
Hagsmunafélög gæta hagsmuna félagsmanna sinna og geta í því sambandi, að fengnu sam-
þykki aðalstjórnar VFÍ, átt aðild að öðrum samtökum.
Lög sérgreinadeilda, landshlutadeilda og klúbbdeilda og breytingar á þeim skulu hljóta sam-
þykki aðalfundar VFÍ á sama hátt og lög VFÍ.
Hagsmunafélag, sem óskar að starfa innan vébanda VFÍ, skal senda um það umsókn til aðal-
stjórnar. Aðalstjórn er skylt að leggja slíka umsókn fyrir aðalfund og geta hennar í fundarboði.
Til samþykklar á slíkri aðild þarf einfaldan meirihluta atkvæða á aðalfundi.
Deildir og hagsmunafélög mega ekki koma fram opinberlega í nafni VFÍ nema með sam-
þykki framkvæmdastjórnar.
Hagsmunafélög skulu hafa sjálfstæðan fjárhag. Deildir mega hafa sjálfstæðan fjárhag.
Lífeyrissjóður
18. gr.
Lífeyrissjóður VFI, stofnaður á félagsfundi 28. september 1954, starfar skv. sérstakri reglu-
gerð.
Verkfræðingahús og hússjóður
19. gr.
Markmið hússjóðs Verkfræðingafélags Islands er að reisa og reka félagsheimili fyrir með-
'imi félagsins. Félagsheimili Verkfræðingafélags íslands heitir Verkfræðingahús og er eign
iélagsins og þeirra meðeigenda, sem með samþykki aðalfundar félagsins eignast hluti í hús-
eigninni.
Verkfræðingahús skal reka sem sjálfstæða stofnun með sérstöku reikningshaldi.
Framkvæmdastjórn skipar húsnefnd, sem annast rekstur Verkfræðingahúss og er ábyrg fyrir
bókhaldi um tekjur og útgjöld sjóðsins.