Árbók VFÍ - 01.06.1993, Page 88
86 ArbókVFI 1992/93
27. gr.
Aukaaðalfund skal kalla saman, þegar stjórninni þykir ástæða til eða þegar 50 félagar óska
þess skriflega.
28. gr.
Aðalfundir og aukaaðalfundir eru lögmætir, ef fundarboð er löglegt skv. 25. gr.
Almennir félagsfundir
29. gr.
Félagsfundir skulu haldnir, þegar stjórn félagsins sér tilefni til. Framkvæmdastjórn ákveður
fundarefni og fundartíma. Stefnt skal að því, að félagsfundir séu 4-6 á ári hverju, venjulega á
tímabilinu 15. sepl. til 15. maí. Fundarefni skulu valin í samræmi við markmið félagsins og
áhugamál félagsmanna.
Framkvæmdastjórn getur boðið gestum á félagsfundi. Fiver félagsmaður getur með leyfi
formanns eða framkvæmdastjóra boðið gestum á félagsfundi. Framkvæmdastjórn getur og
ákveðið, að einstakir fundir séu opnir almenningi og auglýst þá samkvæmt því.
Félagsmaður, sem llytur erindi eða skýrslu á fundi í VFI, skal láta í té ritaðan útdrátt af því,
sem hann flytur, ef þess er óskað.
Umræður á funduin skulu skráðar af fundarritara í fundargerðarbók. Framkvæmdastjórn
getur með samþykki höfunda eða frummælenda látið birta í Tímariti VFÍ eða á annan hátt
erindi og skýrslur, sem fiuttar eru á fundum, eða útdrátt úr þeim og útdrátt úr umræðum.
Án samþykkis framkvæmdastjórnar má engar skýrslur birta um það, sem fram hefur farið á
fundi.
Allsherjaratkvæðagreiðsla
30. gr.
Aðalstjórn félagsins gelur látið fara l'rarn allsherjaratkvæðagreiðslu, þegar henni þykir
ástæða til eða 50 félagar óska þess skriflega.
Með allsherjaratkvæðagreiðslu má taka ákvörðun um öll þau mál, sem aðalfundir einir geta
annars tekið ákvörðun um.
Til samþykktar tillögu við slíka atkvæðagreiðslu þarf meira en 1/2 greiddra atkvæða.
Allsherjaratkvæðagreiðsla fer fram skriflega, og skal senda öllum félagsmönnum kjörgögn
og þær tillögur, er greiða skal atkvæði um, og tilkynna skilafrest á atkvæðaseðlum.
Frestur þessi skal ekki vera skemmri en 3 vikur. Atkvæðaseðlar skulu sendir í pósthólf
félagsins, og skal pósthólfsnúmerið fylgja kjörgögnum. Þegar skilafrestur er útrunnin, skal
framkvæmdastjórnin telja atkvæðin.
Framkvæmdastjórn félagsins skal birta úrslit allsherjaratkvæðagreiðslu í Tímariti VFÍ eða
senda öllum félagsmönnum skriflega tilkynningu um úrslitin.
Félagsgjöld
31. gr.
Árgjald félagsmanna er sundurliðað í þessa liði:
1. Almennt félagsgjald VFÍ.
2. Gjöld til fastanefnda VFÍ.
Aðalfundur VFÍ ákveður almennt félagsgjald og gjöld til fastanefnda að fengnum tillögum
framkvæmdastjórnar.