Árbók VFÍ - 01.06.1993, Side 92
90
ArbókVFI 1992/93
7. grein. Uppgjör og skil verkfræðings til viðskiptavinar skulu vera greinargóð, og ber verk-
fræðingi við lokauppgjör verks að láta viðskiptavini í té sundurliðað yfirlit yfir það starf
sem hann hefur unnið.
8. grein. Verkfræðingur skal ekki ræða á opinberum vettvangi um einstök verkefni sem hann
hefur til úrlausnar, án samþykkis verkkaupa. Hins vegar er heimil málefnaleg umfjöllun um
verkefni, sem lokið er og hafa faglega eða fræðilega þýðingu, t.d. á þingunt verkfræðinga og í
fræðitímaritum. í slíkri umljöllun skal virða rétt verkkaupa og gæta nafnleyndar þarsem við á.
9. grein. Verkfræðingur skal gæta þess að engir óviðkomandi hafi aðgang að skjölum eða
öðrum gögnum, er varðað geta viðskiptavin hans.
II. Um ábyrgð í starfi.
10. grein. Verkfræðingi ber að viðhalda faglegri þekkingu sinni og endurnýja hana. Hann
skal leitast við að fullnægja þeim staðalkröfum sem starfsgrein hans lýtur á hverjum tíma.
11. grein. Verkfræðingur skal vanda hönnun sína og stuðla á annan hátt að greiðri og góðri
verkframkvæmd. Hann skal beita sér fyrir að nauðsynlegar kannanir, rannsóknir og próf-
anir séu gerðar til að tryggja að fullnægjandi fagþekking og reynsla sé hagnýtt við þá ráð-
gjöf sem þörf er á við úrlausn verkefnis.
12. grein. Um fjárhagslega ábyrgð verkfræðings gilda réttarreglur eins og þær eru á hverjum
tíma, svo og gildandi verksamningar, sem gerðir hafa verið við viðskiptavini.
13. grein. Verkfræðingur skal hafa góða skipan á verkfræðistofu eða öðrum starfsvettvangi
sínum, og sjá um að góðum vinnureglum sé fylgt til að tryggja faglega og örugga úrlausn
verkefna.
14. grein. Verkfræðingur má auglýsa og kynna þjónustu sína svo sem samrýmist góðunt verk-
fræðingsháttum. Óheimilt er verkfræðingi að veita rangar, ófullnægjandi eða villandi upp-
lýsingar í auglýsingum eða nteð öðrum hætti, svo og að afla sér viðskipta með öðrunt að-
ferðum, sem sama marki eru brenndar.
III. Um starfssystkini.
15. grein. Verkfræðingar skulu hafa góða samvinnu sín í milli og sýna hver öðruin fulla virð-
ingu í ræðu, riti og framkomu. Innbyrðis keppni þeirra skal fara fram á drengilegan hátt.
16. grein. Verkfræðingar skulu kappkosta að auka veg verkfræðinnar og Verkfræðingafélags
íslands (VFÍ) sem og stuðla að bættri verkmenningu, jafnt í verkfræðingsstörfum sínum,
sem öðrum athöfnum.
17. grein. Verkfræðingar skulu ekki Ijá nafn sitt eða aðstoð þeim er vilja stunda verkfræði-
störf, en hafa ekki til þess nauðsynlega menntun.
18. grein. Verkfræðingi er ekki heimilt að taka að sér störf sem áður höfðu verið falin öðrum
verkfræðingi, nema skil hafi verið gerð við hinn síðarnefnda eða samþykki hans komi til.
19. grein. Þegar verkfræðingur tekur að sér að rýna störf annarra verkfræðinga, skal hann til-
kynna þeim eða VFI um það.
20. grein. Verkfræðingar mega einungis hafa uppi gagnrýni á störf annars félaga á málefnaleg-
um grundvelli og skulu forðast að valda viðkomandi álitsspjöllum umfram það sem mál-
efnið gefur ástæðu til.
IV. Um siðanefnd, meðferð ágreinings og úrskurði.
21. grein. Til þess að framfylgja framanskráðum siðareglum skipar stjórn VFI siðanefnd
samkvæmt lögum félagsins.