Árbók VFÍ - 01.06.1993, Page 333
Bergboltar 331
Þetta gildi er í þokkalegu samræmi við niðurstöður mælinga. Þess má geta að með brotkeilu
af þessari hæð, topphorn 2<þ og þvermál borholu dh = 4,0 cm, ætti þvermál brotkeilunnar við
yfirborð að vera, d = dh + 2 /* tantj) = 15,4 cm
Þessi niðurstaða er einnig í góðu samræmi við niðurstöður mælinga. Þvermál brotkeila
þeirra teina með / > 40 cm mældist á bilinu 13,5 til 15 cm. Á mynd 9b sést hvernig það brot-
líkan sem hér hefur verið lýst fellur að mæligildum. Samræmið er vel við unandi. Hins vegar
verður að hafa þann fyrirvara að mælingarnar eru fáar og mjög óvarlegt er að segja nokkuð um
hegðun lengri bergbolta en prófaðir voru. Hins vegar gefur þessi niðurstaða ákveðna vísbend-
ingu.
Víkjum nú að þeim mælingum sem gerðar voru við Tindafjöll. Þar sem aðeins er um þrjú
mæligildi að ræða verður að taka niðurstöðunni með fyrirvara. Til þess að ákvarða skerstyrks-
stuðla og topphorn brotkeilu er gert ráð fyrir eftirfarandi forsendum;
a) Mismunur á togþoli 25 og 50 cm teinanna byggist á skerstyrk á brotfleti milli
steypu og bergs
b) Lega þeirrar parabólu sem lýsir keilubroti ákvarðast af því að hallatala hennar
fyrir 25 cm langan bolta er jöfn skerbrotsstyrknum og keilubrotsstyrkurinn fyrir
25 cm langan tein er sá sami og mælingar gáfu. Einnig er gert ráð fyrir því, eins
og áður, að parabólan gangi í gegnum núllpunt hnitakerfisins.
Með svipuðum hætti og lýst er að framan fást eftirtalin gildi fyrir móbergið við Tindatjöll,
xk = 1,45 MPa xs = 1,96 MPa c> = 1,29°
Að þessum gildum fengnum er hægt að reikna togþol bergbolta í móbergi við Tindaljöll
eftir nýju brotlíkani. Lega brotferilsins er sýnd á mynd 9a.
í þeim mælingum sem hér hafa verið til umfjöllunar var nokkuð um að skcrbrot skipti milli
brotflata, þ.e.a.s. hluti teins slitnaði upp í skerbroti milli steypu og bergs og hluti í skerbroti
milli bolta og steypu (sjá athugasemd
um 25 cm tein í töflu 3). Þetta gefur til
kynna að skerstyrkur hvors brotflatar
sé svipaður. Með því að gera ráð fyrir
þessu má reikna heftispennu milli
bolta og steypu. Fyrir mælingar við
Suðurlínu fæst heftispenna eins og sést
í dæmi 2. Samkvæmt mælingum við
Blöndulínu fæst á sama hátt dæmi 3.
Að lokinni þessari kynningu á nýju
brotlíkani verða í næsta kafla teknar
saman helstu niðurstöður mælinga.
5 Helstu niðurstöður mælinga
Samanburður tilraunaniðurstaðna og hönnunarlíkana gefur tilefni til eftirfarandi ályktana:
1) Brotmyndir eru samsettar
Af mælingum að dæma virðast bergboltar slitna upp í samsettu broti þannig að efst myndast
brotkeila í bergi og neðri hluti teins slitnar upp í skerbroti. Allir teinarnir nema þrír þeir stystu
fb — Ts dh = 1,96 x 1,28 = 2,51 MPa
db
Dæmi 2
fb=Ts dh = 2,27x2,0 = 4,55 MPa
db
Dæmi 3