Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Page 32
30 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
Meö því að nýta sér afsláttartilboðin hafa menn sparað sér veruleg útgjöld á hverju ári og
heyrst hefur að menn hafi sparað meira en árgjaldi nemur.
Fyrirtækin eru af og til kynnt í fréttabréfí VFÍ.
12.3 Vinnustaðafundir
Því miður hefur oröið minna úr vinnustaðafundum en til stóð. Vinnustaðafundir hér áður fyrr
tókust vel og gáfu jákvæða ímynd af stjórn og félaginu út á viö. Full þörf er á að taka þá upp
að nýju sem aðferð til að ná inn nýjum félögum.
12.4 Háskóii íslands og VFÍ
Stjórn félagsins býður árlega nýútskrifuðum verkfræðingum frá I II ásamt lærifeðrum þeirra
til móttöku í Verkfræðingahúsi á útskriftardaginn. Um 90 manns sóttu félagið heim seinasta
laugardag í júní I994. Nú hefur útskriftardagur verið ákveðinn 17. júní ár hvert og því óvíst
hvert framhaldið verður á þessum annars ágæta sið.
Föstudaginn 10. febrúar sl. bauð VFI þriðja og Ijórða árs verkfræðinemum til kynningar-
fundar í Verkfræðingahúsi. Fundurinn var ljölsóttur og afar ánægjulegur. Þannig fá allir
nemar Háskólans tvö heimboð í Verkfræðingahús. I febrúarhófinu eru gestir annaðhvort
nemar á þriðja eða ijórða ári.
Jafnan hefur verið gott samstarf við verkfræðideild Háskóla Islands, þar eru margir vel-
unnarar félagsins og fyrri formenn, en því miður eru einnig verkfræðingar innan Háskóla
Islands sem ekki hafa séð ástæðu til að ganga í félagið, eða sagt sig úr því. Framkvæmda-
stjórn VFÍ og deildarráð verkfræðideildar Háskóla íslands ákváðu fyrir stuttu að skiptast á
fundargerðum og leitast á þann hátt við að miðla upplýsingum um þau störf sem efst eru á
baugi hverju sinni.
12.5 Tengiliöir á vinnustööum
A tæplega 50 vinnustöðum verkfræðinga hafa félagsmenn tekiö að sér að vera nokkurs konar
tengiliðir vinnustaðarins og VFÍ. Tengiliðirnir koma á framfæri til félaga upplýsingum um
fundi, ráðstefnur og aðrar samkomur á vegum félagins.
Á sínum tíma var að því stefnt að halda a.m.k. tvo fundi árlega með tengiliðum VFÍ. Fyrri
fundinn skyldi halda að hausti og hlera hugmyndir tengiliðanna um efni inn á vetrardagskrá.
Síðari fundinn skyldi halda einum til tveimur mánuðum fyrir aðalfund og auglýsa þar eftir
nýjum stjórnarmönnum, koma tillögum t.d. að lagabreytingum á framfæri svo og öðrum
hugmyndum sem upp koma.
Minna hefur orðiö úr framkvæmd en ætlað var og er það miður, sérstaklega þar sem kerfið
er mikið notað og tengiliðir VFÍ kröftugir stuðningsmenn og velunnarar félagsins.
12.6 Umsagnir
Mikið er um að Alþingi Islendinga og opinberir aðilar aðrir leiti álits eða umsagnar VFÍ á
ýmsum þjóðfélagsmálum. Álit félagsins skiptir þjóðfélagið máli, umsagnir héðan skila sér og
mark er tekió á því sem VFI hefur að segja og sendir frá sér. Jafnan er leitað til sérfróðra
manna og fer það eftir eðli málsins hverju sinni hvert er leitað, en félagið býr yfir ótrúlegum
þekkingarbrunni og á innan sinna vébanda sérfræðing í nánast hverju því máli sem upp
kemur í þjóðfélagsumræðunni.
Á starfsárinu voru veittar umsagnir m.a. um eftirfarandi: