Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Síða 71
Skýrslur fagdeilda VFI 69
Á aðalfundi BVFÍ 1994 urðu nokkrar umræður um hvemig hægt væri að ijármagna rekst-
ur Orðanefndar í framtíðinni. Helstu forkólfar nefndarinnar, þ.á.m. formaðurinn Einar B.
Pálsson, eru komnir á þann aldur að ekki er víst hversu mikið lengur við fáum að njóta starfs-
krafta þeirra og er þess vegna mikilvægt er að móta íjárhagslegan grundvöll Orðanefndar
sem fyrst.
Niðurstaða aðalfundar 1994 var sú að stjórninni var falið að móta tillögu til aðalfundar
1995.
í janúar sl. sendi stjómin umsókn til Málræktarsjóðs urn styrk til Orðanefndar vegna smíði
íðorðasafns byggingarverkfræðinga en á fundi sjóðsins 22. febrúar skyldi tekin ákvörðun um
fyrstu úthlutun úr sjóðnum.
Samþykkt var að úthluta Byggingarverkfræðideild VFÍ kr. 1.200.000,- til verksins.
Skilyrði fyrir styrkveitingunni er að Málræktarsjóður fái eintak af útgáfunni og að nafn
sjóðsins sé getið í henni.
Stjórnin telur að með þessu framlagi úr Málræktarsjóðs hafi verið lagður hornsteinn að
styrkum ljárhag Orðanefndar byggingarverkfræðideildar næstu ár.
1.4 Kynningar á vegum BVFÍ
Á starfsárinu voru haldnar þrjár kynningar á vegum BVFl. I tengslum við aðalfund 1994 sem
haldinn var í húsnæði Vita- og hafnamálastofnunar var kynning á starfsemi stofnunarinnar.
Jafnframt var kynnt áætlun um uppbyggingu innsiglingar inn Homaijarðarós og skoðað líkan
af ósnum og höfn kaupstaðarins við Hornatjörð.
í byrjun febrúar var kynning á hönnunarverkefni á verkfræðistofunni Línuhönnun hf., en
þar flutti Ríkharður Kristjánsson, verkfræðingur, fróðlegt erindi um hönnun brúar og gatna-
móta á Höfðabakka í Reykjavrk.
í apríl var kynningarfundur í húsakynnum Borgarverkfræðings um holræsakerfi Reykja-
víkurborgar þar sem skýrt var frá þróun og áformum í holræsamálum borgarinnar.
1.5 Fjármál
Heildarvelta BVFÍ á starfsárinu var kr. 72.000-, sem er heldur lægri upphæð en undanfarin
ár. Skýringuna má rekja til hugmynda stjórnar um breytta útsendingardaga gíróseðla.
Eign um síðustu áramót er um 675 þúsund krónur.
1.6 Lokaorð
Um leið og ég þakka samferðarmönnum mínum í stjórn byggingarverkfræðideildar VFI fyrir
samstarfið á liðnu starfsári óska ég þeirri stjórn sem nú mun taka við velfarnaðar í starfi.
Gunnar Valur Gíslason, formaður
2 Orðanefnd BVFÍ
Byggingarverkfræðideild Verkfræðingafélags íslands stofnaði Orðanefnd byggingarverk-
fræðinga árið 1980. Hefur nefndin starfað óslitið frá 1. des. 1980. Framan af starfaði hún í
einum hópi, en vegna mikilla verkefna var henni skipt í tvo vinnuhópa A og B árið 1988, og
jafnframt hefur nefndarmönnum íjölgað.
Verkefni Orðanefndar er að búa til heilsteypt íðorðakerfi fyrir hverja grein byggingarverk-
fræðinnar, svo að ræða megi og rita um hana á fullgildri íslensku og af þeirri fræðilegu
nákvæmni, sem við hæfi er.
Einingar íðorðakerfis eru hugtökin, sem fræðigrein byggist á. íðorðasafn nefndarinnar er