Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Qupperneq 72
70 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
því safn íslenskra skilgreininga á hugtökum ásamt íslenskum íðorðum um þau og samsvar-
andi íðorðum á fjórum eða fimm erlendum tungum. Mestur tími í starfmu fer í að semja skil-
greiningarnar. Þær þurfa að vera stuttar, fræðilega réttar og á auðskildu máli. í skil-
greiningunum þarf jafnan að nota mörg orð úr undirstöðugreinum verkfræðinnar. Það er til
mikils trafala í starfi Orðanefndar, hve mjög skortir skilgreiningar og íslensk íðorð í undir-
stöðugreinunum. Nefndin þarf því oft að fara út fyrir eiginlegt verksvið sitt og bæta við
orðum úr undirstöðugreinum í orðasafn sitt. Leitar hún tíðum aðstoðar annarra fagmanna,
einkum háskólakennara. I þessu starfí ber mjög á því, hve tungutak íslenskunnar er lítt þróað
á sviði tækni og raunvísinda. Nefndin leggur mikla vinnu í að ganga svo frá skilgreiningum,
að þær geti verið til fyrirmyndar í notkun tungunnar á því sviði.
Nefndin leitast við að leysa verkið af hendi í samræmi við þá íðorðafræði (termínólógíu),
sem hefur verið að þróast í öðrum löndum á undanförnum árum, og í samræmi við leið-
beiningar Alþjóðlegu staðlastofnunarinnar (ISO) um það efni.
Arið 1994 störfuðu 11 verkfræðingar í nefndinni, svo sem hér segir:
Bragi Þorsteinsson, Verkfr.st. Braga Þorsteinssonar og Eyvindar Valdimarssonar hf.
Einar B. Pálsson, Verkfræðistofnun HÍ Eymundur Runólfsson, Vegagerð ríkisins
Halldór Sveinsson, verkfræðingur
Jens Bjamason, Flugleiðir hf
Páll Flygenring, verkfræðingur
Sigmundur Freysteinsson, VST hf.
Hjörtur Þráinsson, Verkfræðistofnun HÍ
Olafur Jensson, verkfræðingur
Ragnar Sigbjörnsson, HI
Sigurður Erlingsson, HI
Formaður nefndarinnar er Einar B. Pálsson. Orðanefndin nýtur aðstoðar málfræðings, sem
Islensk málnefnd leggur henni til. Það er dr. Halldór Halldórsson, prófessor. Hann situr alla
fundi nefndarinnar og undirbýr einnig mál milli funda ásamt formanni. Auk nefndarmanna
komu ýmsir aðrir sérfræðingar og gestir á fundi.
Verður nú getið starfa hvors vinnuhóps um sig á árinu 1994.
Vinnuhópur A. í honum voru Bragi Þorsteinsson, Einar B. Pálsson, Eymundur Runólfs-
son, Halldór Sveinsson, Ólafur Jensson, Páll Flygenring og Sigmundur Freysteinsson.
Fundir voru haldnir reglulega einu sinni í viku, síðdegis á þriðjudögum, nema um há-
sumarið. Þeir voru haldnir í húsakynnum Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68. Enn sem fyrr á
Orðanefnd Landsvirkjun þökk að gjalda fyrir gestrisni.
Vinnuhópurinn hélt 33 fundi á árinu 1994. Á þeim var að langmestu leyti ijallað um
hugtök, er varða fráveitur og umhverfísmál, alls um 200 hugtök. Einar B. Pálsson hefur
annast undirbúning þessa safns frá upphafi, 1982, en í ársbyrjun 1993 gekk Ólafur Jensson til
liðs við hann og hefur unnið að því síðan.
Vinnuhópur B. I honum voru Einar B. Pálsson, Hjörtur Þráinsson, Jens Bjarnason, Ólaf-
ur Jensson, Ragnar Sigbjörnsson og Sigurður Erlingsson. Þeir Einar og Ólafur voru því í
báðum vinnuhópum.
Vinnuhópurinn hélt 23 fundi á árinu, oftast síðdegis á fostudögum. Fundirnir voru haldnir
í húsakynnum Verkfræðistofnunar Háskóla íslands.
Verkefni vinnuhópsins er orðasafn um aflfræði, og var Ijallað um 15 hugtök á því sviði.
Þau voru um sveiflur og bylgjur. í framhaldi af því vann vinnuhópur B að orðasafni um
jarðskjálfta. Það á að veröa síðasti kaflinn í því orðasafni um jarðfræði, sem vinnuhópur A