Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Blaðsíða 92
1-4
Lög og reglur VFÍ
1 Lög Verkfræðingafélags íslands
(Samþykkt á aukaaðalfimdi 28. nóv 1974 með áorðnum breytingum til og með aðalfundar 15. mars 1995).
Nafn
1. gr.
Félagið heitir Verkfræðingafélag íslands, skammstafað VFI, og hefur aðsetur í Reykjavík.
Um málefni Verkfræðingafélags íslands fjalla aðalstjórn og framkvæmdastjórn, sbr. 13. og
14. grein, auk félagsfunda.
Markmið fclagsins
2. gr.
Markmið félagsins er:
að efla verkfræðilega og vísindalega þekkingu félagsmanna,
að auka gagnkvæm kynni þeirra,
að stuðla að tækniþróun í landinu,
að auka álit verkfræðilegrar og vísindalegrar menntunar,
að auka þekkingu og skilning á starfi verkfræðinga,
að gæta hagsmuna stéttarinnar í hvívetna.
3. gr.
Félagið vinnur að markmiðum sínum meðal annars með því:
að halda fundi um áhugamál félagsmanna,
að halda uppi fræðslustarfsemi, svo sem námskeiðum og erindaflutningi,
að efna til skoðunarferða,
að gefa út Tímarit VFI og stunda aðra útgáfustarfsemi,
að stuðla að starfsemi sérgreinadeilda, sem tjalla um málefni hinna ýmsu verkfræðigreina,
að stuðla að starfsemi hagsmunafélaga, er gæta hagsmuna stéttarinnar,
að hafa tengsl við samtök verkfræðinga erlendis,
að hafa tengsl við samtök háskólamenntaðra manna hérlendis og erlendis.
Fclagar
4. gr.
Almennir félagar geta orðið:
1. Þeir Islendingar, er lokið hafa viðurkenndu lullnaðarprófi í verkfræði, svo og þeir
Islendingar, sem lokið hafa fullnaðarprófi við viðurkenndan háskóla í þeim vísindagreinum,
sem verkfræðin byggist á (eðlisfræði, efnafræði, stærðfræði o.fl.). Einnig þeir erlendir menn,
sem lokið hafa sams konar prófi, ef umsókn þeirra hlýtur samþykki aðalstjórnar samkv. 8,gr.
2. Aðrir fræðimenn í raunvísindum eða framkvæmdamenn á tæknisviði, sem aðalstjórn
félagsins býður að gerast félagar, þegar ástæður mæla með.