Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Side 96
94 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
17. gr. A
Félag áhugamanna eða sérfræðinga um verkfræði, tækni eða önnur skyld mál getur óskað
eftir að tengjast VFÍ, án þess að vera sérgreinadeild, landshlutadeild, klúbbdeild eða hags-
munafélag í merkingu 17. gr.
Það er ekki skilyrði fyrir tengslum eða samvinnu við VFl, að í félagi, sem hlut á að máli,
séu eingöngu verkfræðingar.
Gera skal hverju sinni sérstakan samning um tengsl eða samvinnu félags við VFÍ.
Samningur skal gerður á þeim grundvelli, að aðilar hans séu hvor um sig sjálfstætt félag
varðandi íjárhag og önnur atriði.
Samningur samkvæmt þessari grein er ekki bindandi fyrir VFI án samþykkis aðalfundar.
Sama á við um breytingar á slíkum samningi.
Lífeyrissjóður
18. gr.
Lífeyrissjóður VFÍ, stofnaður á félagsfundi 28.september 1954, starfar skv. sérstakri
reglugerð.
Verkfræðingahús og hússjóður
19. gr.
Markmið hússjóðs Verkfræðingafélags íslands er að reisa og reka félagsheimili fyrir
meðlimi félagsins. Félagsheimili Verkfræðingafélags Islands heitir Verkfræðingahús og er
eign félagsins og þeirra meðeigenda, sem með samþykki aðalfundar félagsins eignast hluti í
húseigninni.
Verkfræðingahús skal reka sem sjálfstæða stofnun með sérstöku reikningshaldi.
Framkvæmdastjórn skipar húsnefnd, sem annast rekstur Verkfræðingahúss og er ábyrg
fyrir bókhaldi um tekjur og útgjöld sjóðsins.
Fyrir lok hvers starfsárs skal húsnefnd gefa framkvæmdastjórn skýrslu um starfsemi og
afkomu hússjóðs ásamt áætlunum um framkvæmdir og fjárþörf hússjóðs fyrir næsta starfsár.
Siðanefnd
19. gr. A
í félaginu skal starfa siðanefnd. Hlutverk hennar er að láta í ljós álit um ágreining, sem
rísa kann vegna ætlaðs brots á siðareglum félagsins. Nefndin kemur saman, ef tilefni er til.
Siðanefnd starfar óháð stjórn VFI og ákveður hvemig áliti nefndarinnar er komið á framfæri.
I siðanefnd eiga sæti fimm fyrrverandi formenn félagsins, þeir er síðast gegndu því starfi.
Seinasti fyrrverandi formaður skal þó ekki sitja í nefndinni fyrr en að tveimur ámm liðnum
frá því að hann lét af formennsku.
Sé nefndarmaður forfallaður eða vanhæfur til þess að taka þátt í nefndarstörfum, skal vara-
maður kosinn af framkvæmdastjórn félagsins.
Formaður siðanefndar er sá nefndarmaður, sem fyrst gegndi formennsku í félaginu.
Formaður kallar nefndina saman og stýrir fundum hennar.
Menntamálanefnd
20. gr.
Menntamálanefnd vinnur að því að efla verkfræðilega og vísindalega þekkingu félags-
manna. Hún skal gera tillögur til framkvæmdastjórnar um, hvernig best sé unnið að þessu
markmiði félagsins.