Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Blaðsíða 10
8 Formálar
í 2. kafla í bókinni er tækniannállinn. í fyrsta hluta hans er fjallað um þróun efnahags-
mála. Síðan eru tekin fyrir byggingamál, orkumál, stóriðja og iðnaður, nýsköpun og þróunar-
mál, samgöngur og fjarskipti, útflutningur íslenskrar verkfræðiþekkingar og loks eru teknar
fyrir nokkrar stofnanir.
I 3. kafla er kynning fyrirtækja. Fyrsti kaflinn í honum er kynning fyrirtækja ráðgjafar-
verkfræðinga, samtals 20 fyrirtækja, og er sérhvert fyrirtæki kynnt á hálfri eða einni síðu.
Síðan eru kynnt fyrirtæki og stofnanir, alls 16 fyrirtæki, hvert um sig í sérkafla.
I 4. kafla eru ritrýndar vísindagreinar. Að þessu sinni bárust fjórar fræðigreinar að því
tagi, en þær voru fimm í fyrra. Ritrýndar greinar hafa náð fótfestu í árbókinni og er greini-
legt að nú er svo komið að eftirsóknarvert þykir að birta í henni slíkar greinar. Árbók
VFÍ/TFÍ er eini vettvangurinn á íslandi sem verkfræðingar og tæknifræðingar hafa til að láta
birta eftir sig ritrýndar greinar. Ekki fer á milli mála að þessar greinar auka gildi bókarinnar
og gæði.
I síðasta kafla bókarinnar, 5. kafla, eru birtar sjö tækni- og vísindagreinar, tveimur
greinum fleiri en í síðustu árbók. Allar eru þessar greinar fróðlegar. Takmörkuð stærð bók-
arinnar leyfði ekki birtingu fleiri greina þótt völ hefði verið á fleirum. Það er ánægjulegt til
þess að vita að áhugi félagsmanna fyrir greinarskrifum hefur aukist.
Öllum sem komu við sögu við gerð þessarar árbókar vill ritstjórinn þakka. Pétri Stefáns-
syni formanni VFI og Jóhannesi Benediktssyni formanni TFÍ, sem hafa skrifað um félags-
mál og safnað saman skýrslum frá nefndum og ráðum félaganna, vil ég þakka sérstaklega fyrir
fórnfúst starf. Starfsfólk á skrifstofu félaganna er ætíð boðið og búið til að aðstoða við öflun
upplýsinga og hvaðeina sem óskað er eftir. Það er sérstaklega ánægjulegt að geta leitað til
slíks ágætisfólks.
Prófarkalestur er nákvæmnisvinna og krefst mikillar athyglisgáfu ef vel á að takast til.
Við umbrotsvinnu er þörf á útsjónarsemi og getur vinnan reynt á þolinmæðina því að þau
gögn sem berast eru mjög misjafnlega vel unnin. Báðir ofannefndir verkþættir eru tíma-
frekir, sérstaklega vegna þess að gögn berast oft seint og ekki er unnt að vinna samfellt.
Greinar og skrif eru tekin fyrir jafnskjótt og efnið berst, sem er nauðsynlegt til þess að hægt
sé að ljúka bókinni á tilsettum tíma. Pétri Ástvaldssyni er þakkað fyrir nákvæman próf-
arkalestur og Agli Baldurssyni fyrir umbrotsvinnu.
Höfundum ritrýndra greina og annarra tækni- og vísindagreina er þakkað fyrir fróðlegar
greinar, en án þeirra væri útgáfa árbókarinnar í núverandi mynd ómöguleg. Ritrýnendum ber
einnig að þakka fyrir óeigingjarnt starl', en nafna þeirra er ekki getið.
Síðast en ekki síst ber að þakka fyrirtækjum og stofnunum fyrir ágætar kynningargreinar
og fjárframlög til að ná upp í kostnað við gerð árbókarinnar. Sömuleiðis er auglýsendum
þakkað með ósk urn að auglýsingamar skili þeim árangri sem sóst er eftir.
Það er von mín að félagsmenn hafi ánægju af lestri árbókarinnar og að þeir finni einhvern
fróðleik sem vekur áhuga. Að minnsta kosti hef ég haft ánægju af lestri hinna fjölmörgu
greina sem birtast í árbókinni í þetta sinn. Sömuleiðis gefur lestur félagsmálakaflans góða
innsýn í hið margbrotna félagsstarf sem á sér stað í báðum félögum.
Loks vil ég geta þess að hin margslungnu ritstjórnarstörf hafa veitt kærkomna tilbreyt-
ingu frá hefðbundnum verkfræðistörfum. Samskipti við þá fjölmörgu einstaklinga sem hafa
komið við sögu við gerð bókarinnar hafa verið sérstaklega ánægjuleg. Að lokum vill ritstjóri
óska öllum félagsmönnum velfarnaðar á komandi ári.