Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Blaðsíða 350
348 Tækni- og vísindagreinar
í blöndu 1-9 er íslenskt VP-sement, þ.e. með 7,5% kísilryki og 3% líparíti.
í blöndur 1-1, 1-2, og 1-15 er notað slag með VP-sementi. Slagið er sænskt (Merit 5000).
Um 15% slag er í blöndu 1-1, um 40% í blöndu 1-2 og um 60% í blöndu 1-15. Þessi sýni
innihalda því þrjár gerðir af íblöndunarefnum, þ.e. líparíti, kísilryki og slagi. Þá er einnig
begískt slagsement (SR-Top) í blöndu 1-14. Það inniheldur um 70% slag. Sama sements-
tegund var notuð í kjallara Ráðhúss Reykjavíkur.
Blöndur 1-3, 1-4 og 1-5 eru með flugösku (frá Aalborg Portland í Danmörku). Það er
um 10% af flugösku í sýni 1-3, um 15% í blöndu 1-4 og um 25% í blöndu 1-5, allt með
íslensku VP-sementi. Það er eins með þessi sýni og sýni 1-1, 1-2 og 1-15 að þau innihalda
þrjár gerðir af íblöndunarefnum, þ.e. líparít, kísilryk og flugösku.
sýni sementstegund sement kísilryk líparít kolaryk slag v/bindi- efna- hlutfall
1-12 HP 100 0 0 0 0 0,33
1-17 Norskt HP 100 0 0 0 0 0,32
1-18 Danskt SRC 100 0 0 0 0 0,32
1-9 VP 89,5 7,5 3,0 0 0 0,33
1-1 VP 76,1 6,4 2,6 0 15 0,33
1-2 VP 53,7 4,5 1,8 0 40 0,34
1-15 VP 35,8 3,0 1,2 0 60 0,34
1-14 SR-top 30 0 0 0 70 0,34
1-3 VP 80,6 6,8 2,7 10 0 0,34
1-4 VP 76,1 6,4 2,5 15 0 0,35
1-5 VP 67,1 5,6 2,2 25 0 0,36
Tafla 1 Múrblöndur. Tegund og hlutföll bindiefna og föst íblöndunarefhi, þyngdarprósentur.
Prófanir
Þegar sýnin voru orðin 28 daga gömul hól'ust prófanir (tilraunir) á þeirn. Sýnin voru geymd
í sjó við 40°C og í lausn sem var með u.þ.b. 10 sinnum hærri jónastyrk en sjór við 25°C.
Tilgangurinn með því að geyma sýnin við 40°C er sá að með auknu hitastigi eykst hraði
efnahvarfa og þar af leiðandi fást niðurstöður úr rannsókninni fyrr en ella. Sömu forsendur
liggja að baki því að geyma sýni í lOx lausninni en aukinn jónastyrkur veldur hraðari efna-
skiptum og því þarf ekki að bíða eins lengi eftir niðurstöðum og þyrfti ef tilraunirnar væru
keyrðar við náttúrulegar aðstæður.
Sýnin sem voru geymd í sjó og lOx lausninni voru sett í frost/þíðu-prófun eftir að hafa
legið 2 og 12 mánuði í þeim. Það liggur í augum uppi að með því að láta sýnin liggja í sjó
og síðan að keyra þau í f/þ-prófunum er verið að líkja eftir náttúrulegum aðstæðum. Mark-
miðið með þessum tilraunum er að kanna þátt sjávar í f/þ-niðurbroti. Prófunaraðferðin er sú
sama og áður, þ.e. sænska prófið með 3% NaCl-lausn (SS 13 72 44). Áhrif lausnanna á
sementsefjuna var metin með smásjárrannsóknum.