Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Blaðsíða 45
Skýrslur fagdeilda VFÍ 43
Tölvuhópur ORVFÍ hefur á hinn bóginn sett sama orðasafn inn á heimasíðu Orðanefnd-
ar rafmagnsverkfræðingadeildar, sem vistuð er á Internetinu, á vefsíðum Verkfræðinga-
félagsins. Ákvörðun um að koma raftækniorðasafninu fyrir á nelinu var tekin fyrir nokkrum
árum, áður en ljóst var að Orðabanki málstöðvar yrði að veruleika. Áhugamannahópur Orða-
nefndar um tölvumál sá að öllu leyti urn verkið. Orðanefnd er ánægð með þennan árangur
og nýjan áfanga í starfi sínu og færir tölvuhópnum alúðarþakkir fyrir unnið verk um leið og
hún óskar honum til hamingju með árangurinn. Þetta er tilraun og góð byrjun þó að ekki sé
Ijóst hverl framhald birtingarinnar verður, þar sem íðorðabanki Islenskrar málstöðvar er orð-
inn að veruleika og mun vonandi eflast og vaxa. Ekki er ástæða til að hafa raftækniorða-
safnið á tveimur stöðum á netinu og harla eðlilegt að standa, ásamt öðrum íðorðanefndum,
að því að efla íðorðabanka Málstöðvarinnar og gera hann að sameiginlegum íðorðabanka
með tugþúsundum íðorða frá fjölmörgum íðorðanefndum.
í febrúar 1998 hlaut Orðanefndin svo 400.000 króna styrk úr Málræktarsjóði til að létta
undir við útgáfu næsta bindis Raftækniorðasafns, en það kemur út í vor, ef áætlanir stand-
ast. Ekki hefur þó endanlega verið ákveðið hvort þessu bindi safnsins verði skipt upp í tvö
bindi vegna umfangs efnisins. Ef bækurnar yrðu tvær kæmu þær út samtímis.
Starf Orðanefndar rafmagnsverkfræðinga við íðyrðasmíði á liðnu starfsári snerist fyrst
og fremst um að yfirfara þýðingar nefndarinnar á þeim köflum orðasafns Alþjóða raftækni-
nefndarinnar, IEC, sem koma eiga út vorið 1998. Fyrri hluta staifsársins var þó unnið við
þýðingar á íðorðum um snúðvélar, svo að sá kafli er nú í raun tilbúinn til lokayfirlestrar sér-
fræðinga og hraðlestrar til innbyrðis samræmingar. Ljósfræðikafli bíður einnig slíkra yfir-
lestra. Að þeim loknum væru báðir þessir stóru kaflar Alþjóða raftækniorðasafnsins líka til-
búnir til útgáfu.
Það hefur lengi verið orðanefndarmönnum áhyggjuefni, að ungt fólk skuli ekki ganga til
liðs við nefndarmennina. Þessi vandi erekki einungis hjá Orðanefnd rafmagnsverkfræðinga.
Aðrar orðanefndir eiga við sama vanda að stríða. Meðalaldur nefndarmanna og starfstími
þeirra innan nefndarinnar er hár. Íðorðasmíð lýkur aldrei ef menn vilja tala tæknimál sem
fellur að lögmálum og reglum íslenskrar tungu. Ungir menn og menn á miðjum aldri þurfa
því smám saman að taka við störfum þeirra sem vinna að þessum málum nú. Það er stéttinni
til sóma og skemmtilegt að minnast þess að rafmagnsverkfræðingar störfuðu af miklum eld-
móði með fyrstu orðanefnd Verkfræðingafélagsins, rneðan hennar naut við, á árunum frá
1919 til 1933. Að henni genginni stofnuðu rafmagnsverkfræðingar sjálfir orðanefnd, aðeins
fáum vikum eftir stofnun félagsdeildar sinnar innan Verkfræðingafélagsins árið 1941. Þessi
nefnd starfar enn, 57 árum síðar. Ef litið er til upphafsára nefndarinnar sést að helmingur
allra stofnfélaga rafmagnsverkfræðingadeildar starfaði á virkan hátt að orðanefndarmálum
fyrstu starfsár nefndarinnar og sýndu þar með áhuga rafmagnsverkfræðinga á eflingu
íslenskrar lungu.
Á síðasta aðalfundi RVFÍ, í apnl 1997, voru eftirtaldir rafmagnsverkfræðingar kosnir í
orðanefndina: Bergur Jónsson formaður, Gísli Júlíusson, ívar Þorsteinsson, Jón Þóroddur
Jónsson, Kristján Bjartmarsson, Sigurður Briem, Sæmundur Oskarsson, Valgerður Skúla-
dóttir og Þorvarður Jónsson. Að auki eru í nefndinni rafmagnstæknifræðingarnir Guð-
mundur Guðmundsson og Hreinn Jónasson. Frá júlí 1997 hefur Baldur Sigurðsson einnig
starfað með nefndinni sem sérfræðingur um íslenskt mál, eins og segir hér að framan.
Orðanefndin hefur að jafnaði haldið vikulega fundi, undanfarna áratugi í húsakynnum