Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Blaðsíða 41
Skýrslur fagdeilda VFI 39
Orðanefnd byggingarverkfræðinga
Byggingarverkfræðideild Verkfræðingafélags íslands stofnaði Orðanefnd byggingarverk-
fræðinga árið 1980. Hefur nefndin starfað óslitið frá 1. des. 1980. Vegna mikilla verkefna
var henni skipt í tvo vinnuhópa, A og B, árið 1988 og jafnframt hefur nefndarmönnum verið
ljölgað.
Verkefni Orðanefndar er að semja heilsteypt íðorðakerfi fyrir hverja grein byggingar-
verkfræðinnar, svo að ræða megi og rita um hana á fullgildri íslensku og af þeirri l'ræðilegu
nákvæmni sem við hæfi er. Einingar íðorðakerfis eru hugtökin sem fræðigrein byggist á.
íðorðasafn nefndarinnar er því safn íslenskra skilgreininga á hugtökum ásamt íslenskum
íðorðum um þau og samsvarandi íðorðum á fjórum eða fimm erlendum tungum. Mestur tími
starfsins fer í að semja skilgreiningarnar. Þær þurfa að vera stuttar, fræðilega réttar og á auð-
skildu máli. í skilgreiningunum þarf jafnan að nota mörg orð úr undirstöðugreinum verk-
fræðinnar. Það er til mikils trafala í starfi Orðanefndar hve mjög skortir íslensk íðorð ásamt
skilgreiningum í undirstöðugreinunum. Nefndin þarf því oft að fara út fyrir eiginlegt verk-
svið sitt. Leitar hún tíðum aðstoðar annarra fagmanna, einkum háskólakennara.
í þessu starfi finnst ekki aðeins fyrir því að orð skorti heldur einnig hversu vanþróað
sjálft tungutak íslenskunnar er á sviði raunvísinda og tækni. Mikil vinna er lögð í að ganga
svo frá skilgreiningum að þær geti verið til fyrirmyndar í notkun tungunnar. Nefndin leitast
við að leysa verk sitt af hendi í samræmi við þá íðorðafræði (termínólógíu), sem hefur þró-
ast í öðrum löndum á undanförnum árum, og í samræmi við leiðbeiningar Alþjóðlegu staðla-
stofnunarinnar (ISO) um það efni.
Árið 1997 störfuðu 11 eftirtaldir verkfræðingar í nefndinni: Bjarni Bessason, Háskóla
íslands, Bragi Þorsteinsson, Verkfræðistofu Braga Þorsteinssonar og Eyvindar Valdimars-
sonar hf., Einar B. Pálsson verkfræðingur, Eymundur Runólfsson,Vegagerð ríkisins, Gísli
Valdimarsson, VSB Verkfræðistofa ehf., Guttormur Þormar verkfræðingur, Jens Bjarnason,
Háskóla Islands og Flugleiðum, Olafur Jensson verkfræðingur, Páll Flygenring verkfræð-
ingur, Ragnar Sigbjörnsson, Háskóla Islands, Sigmundur Freysteinsson, Landsvirkjun og
Sigurður Erlingsson, Háskóla Islands.
Formaður nefndarinnar er Einar B. Pálsson. Hefur hann jafnframt verið ritstjóri þeirra
íðorðasafna sem nefndin hefur unnið að frá upphafi og undirbýr efni sem nefndin fjallar urn
á fundum. Hann hefur vinnuaðstöðu í húsi Verkfræðideildar og Raunvísindadeildar, þar sem
bókasafn deildanna er. í ársbyrjun 1993 gekk Ólafur Jensson til liðs við Einar og hefur unnið
samfellt með honum síðan og m.a. lagt tölvu sína til verksins.
íslensk málnefnd leggur orðanefndinni til málfræðing til ráðuneytis, dr. Halldór Halldórs-
son prófessor. Hann hefur starfað með nefndinni samfellt frá 16. febrúar 1982, setið á lang-
flestum fundum hennar og undirbúið mál milli l'unda ásamt formanni. Árið 1997 gat Halldór
ekki setið fundi en hefur þó starfað áfram fyrir nefndina, verið nær daglega í símasambandi
við formann hennar og haldið marga fundi með honum á heimili sínu.
Auk nefndarmanna komu ýmsir aðrir sérfræðingar á fundi til ráðuneytis eða lögðu nefnd-
inni lið. Skulu hér einkum nefndir tveir lyfjafræðingar, þeir Axel Sigurðsson og Finnbogi R.
Hálfdánarson, og ennfremur hefur Ögmundur Einarsson tæknifræðingur, forstjóri Sorpu, lagt
nefndinni lið. Margir gestir komu á fundi nefndarinnar til að kynnast starfsháttum hennar.
Orðanefnd byggingarverkfræðinga hefur starfað frá 1988 í tveimur vinnuhópum, A og B.