Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Blaðsíða 113
Lífeyrissjóður verkfræðinga 111
Laun og launatengd gjöld hækkuðu um 447 þúsund krónur eða um 2,9% og annar kostn-
aður hækkaði um 1.812 þúsund krónur eða 22,6%. Þar af hækkaði kostnaður við forrit og
tölvuþjónustu um 586 þúsund krónur, sími og burðargjöld um 138 þúsund krónur, fundir og
ráðstefna um 528 þúsund krónur og auglýsingar um 522 þúsund krónur. Skipt var út tölvum
á árinu og haldin ráðstefna síðastliðið haust, sem mönnum er í fersku rninni. Reynt er að
gæta aðhalds í kostnaðarútgjöldum svo sem kostur er.
Samkvæmt breytingu og samræmingu á uppgjörsreglum lífeyrissjóða, sem getið var um
hér að framan er tilfærsla á liðnurn „Aðrar tekjur“ með öðnrm orðum rekstrartekjum, þannig
að dráttarvextir af iðgjöldum falla nú undir þennan lið, en lántökugjöld, sem þar voru áður
falla nú undir fjárfestingartekjur. Ekki eru allir sáttir við þessar breytingar.
Fjárfestingastefna
Fjárfestingastefna sjóðsins á síðasta ári var framhald á stefnu ársins 1996. Sjóðfélögum voru
lánaðar 208 milljónir króna, sem er nánast sama fjárhæð og árið 1996, sem leiðir til lækk-
andi hlutfalls sjóðfélagalána í heildareign sjóðsins.
Innlend skuldabréfakaup markaðsbréfa drógust verulega saman vegna lágrar ávöxtunar.
Haldið var áfram að byggja upp hlutabréfaeign í innlendum hlutabréfum, einkum í öllugum
fyrirtækjum í sjávarútvegi, sem skráð eru á verðbréfaþingi. Keypt voru innlend hlutabréf
fyrir 21 I milljónir króna umfram seld bréf.
Megináhersla hel'ur verið á kaup erlendra verðbréfa bæði til aukningar ávöxtunar og
dreifingar áhættu. Fjárfestar voru á árinu 637 milljónir króna erlendis í hlutabréfum fyrir-
tækja og fyrrnefndum Convertibles-skuldabréfum.
Eign sjóðsins er varðveitt með eftirfarandi hætti:
1997 1996 1995
11,2% (16,5%) (14,1%) í verðtryggðum lánum fjárfestingarlánasjóða
34,8% (37,0%) (40,9%) í verðtryggðum lánum til sjóðfélaga
0,3% ( 0,3%) ( 0,5%) í gengis- og verðtryggðum lánum ríkissjóðs
26,6% (15,1%) (14,3%) í erlendum verðbréfum
7,6% (10,3%) (13,3%) í verðtryggðum lánum bæjar- og sveitarfélaga
0,0% ( 1,9%) ( 2,7%) í innlendum verðbréfasjóðum
0,9% ( 1,1%) ( 1,2%) í verðtryggðum lánum banka og sparisjóða
4,1% ( 4,8%) ( 6,1%) í öðrum verðtryggðum lánum
0,6% ( 0,7%) ( 1,0%) í Verkfræðingahúsi
0,8% ( 2,6%) ( 3,0%) í skammtímakröfum
10,0% ( 7,4%) ( 1,1%) íhlutabréfum
0,0% ( 0,1%) ( 0,1%) í öðrum eignum
3.1% ( 2,2%) ( 1,7%) í lausafé
100,0%
Allnokkur breyting er á samsetningu verðbréfaeignar sjóðsins þar sem hlutfall sjóðfélagalána
lækkar frá ári til árs, nú um 2,2% eignar. Hlutfall erlendra verðbréfa eykst svo og innlendra
hlutabréfa. Ráðstöfunarfé var 1.180 milljónir króna 1997 eða 380 milljónum króna hærra en
árið áður. Með þessari fjárfestingarstefnu er stefnt að því að auka ávöxtun sjóðsins.