Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Blaðsíða 223
Lýsing hf. 221
mat á kostnaði verða menn að taka tillit til skattalegs hagræðis sem í mörgum tilvikum getur
numið allt að 1%. Fyrir utan skattalega hagræðið sem oft er fyrir hendi koma aðrir kostir,
svo sem minni kröfur um baktryggingar en við hefðbundin lán, rekstrarfé er ekki bundið,
sveigjanlegar greiðslur eru á samningstíma að ósk leigutaka, greiðslur eru jafnar (annuitet)
sem auðveldar áætlanagerð og þjónustan er hröð og persónuleg.
Lýsing hefur verið rekin með hagnaði öll starfsárin og er stærsta eignarleigufyrirtækið á
íslandi á sviði fjármögnunar atvinnutækja. Má þakka þann árangur vönduðum og faglegum
vinnubrögðum við mat á umsóknum og fyrirspurnum. Lýsing er í eigu Landsbankans,
Búnaðarbankans, Sjóvá-Almennra og VÍS og er aðili að Multi-lease Association, sem er
samtök eignarleigufyrirtækja um allan heim.
Fjármögnunarleiðir Lýsingar
Lýsing býður upp á fjölbreyttar fjármögnunarleiðir, bæði á atvinnutækjum, atvinnuhúsnæði
og nú síðast á einkabílum fyrir einstaklinga. Til fjármögnunar á atvinnutækjum er boðið upp
á fjármögnunarleigu,- kaupleigu- og rekstrarleigusamninga og einnig fjárfestingalán.
Fjármögnunarleiga: Fjármögnunarleigusamningarnir hafa verið mest notaða samnings-
formið, enda afar hentugir til fjármögnunar á hvers kyns atvinnutækjum. Yfirleitt eru fjár-
mögnuð 70-100% af andvirði tækisins í allt að 60 mánuði og er Lýsing eigandi tækisins
meðan samningurinn gildir. Leigutaki greiðir leigugreiðslur sem hann getur gjaldfært í bók-
haldi og afskrifar þannig tækið að fullu á samningstíma. Ef samningstími er styttri en eðli-
legur afskriftartími tækis er þannig hægt að ná fram skattalegu hagræði. Auðvelt er að skipta
út tækjum fyrir ný bæði á samningstíma og við lok samnings og nota þau sem innborgun á
nýja tækið.
Kaupleiga: Kaupleigusamningarnir eru einnig algengir en ekki eins vinsælir og fjár-
mögnunarleigusamningar. Þótt formið sé svipað, þ.e. Lýsing er skráður eigandi, skuldbind-
ur kaupandi sig í upphaft til að kaupa tækið í lok leigutíma, oftast á 3% af leigugrunni.
Leigutaki eignfærir tækið í bókhaldi ólíkt fjármögnunarleigusamningunum og afskrifar á
eðlilegan hátt. Kaupleigan hentar einnig vel til fjármögnunar á öllurn atvinnutækjum, en
hentar betur en fjármögnunarleiga fyrir tæki sem ekki eru klárlega ætluð til atvinnureksturs,
t.d. eins og fyrirtækjabíla á bláum númerum. Einnig er VSK-meðferð frábrugðin, þar sem
allur virðisaukaskatturinn er gerður upp í upphafi samnings, ólíkt fjármögnunarleigu. Leigu-
greiðslum er skipt í afborgun og vexti og samningur er meðhöndlaður í bókhaldi leigutaka
líkt og um lán væri að ræða.
Rekstrarleiga: Rekstrarleiga er enn eitt form eignarleigusamninga sem hefur verið að ryðja
sér til rúms á íslandi. Rekstrarleigusamningarnir eru einna líkastir hefðbundnum leigusamn-
ingum, þar sem leigutaki gerir rekstrarleigusamning við Lýsingu, yfirleitt í 6-36 mánuði,
skilar svo tækinu inn í lok leigutíma og er laus allra ntála. Samningar sem þessir eru gerðir
með þátttöku seljanda og innifalið í leigugreiðslum er öll eðlileg þjónusta og viðhald við
tækið, en aðrar skemmdir t.d. vegna ógætilegrar meðferðar greiðir leigutaki sjálfur. Þetta er
eitt mest notaða samningsformið bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Rekstrarleigusamningar