Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Blaðsíða 341
Mælingar og skráning á niðurslætti eldinga til jarðar 339
Eymundur Sigurðsson, Landsvirkjun, formaður, Guðleifur M. Kristmundsson, Rafmagns-
veitu Reykjavíkur og Þórður Arason, Veðurstofu fslands. Veðurstofan hýsir móðurstöð
kerfisins, sér um daglegan rekstur þess og annast geymslu og úrvinnslu gagna. Að samn-
ingstíma liðnum munu niðurstöður mælinga á þessu þriggja ára tímabili verða metnar og
afstaða tekin til þess hvort framhald verður á samstarfinu.
Ákveðið var að kaupa notuð mælitæki frá Noregi sem þar höfðu verið í notkun í nokkur
ár og framleidd voru af bandaríska fyrirtækinu Lightning Location and Protection Inc. Þá
höfðu um nokkurt skeið legið fyrir niðurstöður úr athugun Helgu Jóhannsdóttur
rafmagnsverkfræðings, en hún gerði árið 1993 samanburð á nokkrum fáanlegum tegundum
eldingamælitækja [5]. Þar sem tækin eru ekki af nýjustu gerð jafnast þau ekki á við það sem
best gerist hvað varðar mælinákvæmni og skilvirkni. Seljendur tækjanna aðstoðuðu við
uppsetningu þeirra og var því verki lokið í október 1996. ítarlega lýsingu á uppsetningu
mælikerfisins er að finna í skýrslu Veðurstofunnar sem gefin var út í október 1996 [6].
Mælikerfið
Meginhlutar mælikerfisins eru móðurstöð og fjórar mælistöðvar og er lega stöðvanna sýnd
á mynd 1. Mikilvægt er að mælistöðvarnar séu settar niður á svæðum sem eru liltölulega
opin og laus við truflanir, t.d. af völdum raforkukerfa. Því var reynt að forðast aðveitu-
stöðvar og spennistöðvar rafveitnanna en valið heldur að setja mælistöðvamar niður í nánd
við stöðvar Pósts og síma eða athugunarstöðvar Veðurstofunnar. Mikilvægt var einnig við
staðarvalið að fjarskiptaleiðir væru fyrir hendi.
Móðurstöðin, sem er af gerðinni APA-281, er í húsi Veðurstofunnar við Bústaðaveg í
Reykjavík. Mælistöðvamar eru af gerðinni DF 80-02 og eru við Ásgarð í Dölum (ÁS) á stað
65,235°N, 21,767°V, á Syðri-Neslöndum við Mývatn (SN) á stað 65,619°N, 16,981°V og á
Hnausunt í Meðallandi (HN) á stað 63,616°N, 18,073°V. Fjórða stöðin var í fyrstu sett upp við
Lækjarbakka í Gaulverjabæjarhreppi en síðar var ákveðið að flytja hana til Reykjavíkur þar sem
talið var heppilegt að hafa eina mælistöð aðgengilega á meðan unnið væri að gangsetningu
kerfisins. Þessi stöð er nú í húsi Veðurstofu íslands í Reykjavík (RE) á stað 64,133°N, 21,900°V.
Vegna vandamála með rekstur móðurstöðvarinnar hefur gögnum einnig verið safnað á
PC-tölvur á mælistöðvum ásamt dagsetningu og tíma PC-tölvunnar upp á millisekúndu.
Klukka tölvunnar nær þó að flýta sér eða seinka og eftir nokkurn tíma eru klukkumar á
stöðvunum allar orðnar mismunandi, sem
nemur oft 10-100 sekúndum. Til að ráða bót á
þessu er hringitölva á Veðurstofu sem athugar
klukku á stöðvunum á sjálfvirkan hátt í hvert
sinn sem náð er í gögn. Náð er í gögn á þriggja
klst. fresti og bendir alll til þess að klukkuskrið
á svo stuttum tíma sé með jöfnum hraða. Því er
hægt að leiðrétta klukku gagnanna um leið og
gögnin koma á Veðurstofu.
Mælingar byggjast á því að nema aðgreind
merki frá segulsviði (B) og rafsviði (E) vegna
Mynd 1 Lega eldingamœlistöðva. niðursláttar eldingar og eru tvenns konar lofnet